Hlín - 01.01.1949, Page 19
Hlín
17
Ragnhildur Ólafsdóttir í
Engey. Var hún húsmóð-
ir þar í þrjátíu ár. Næst-
ur henni var Ólafur bú-
fræðingur og bóndi í
Lindarbæ í Holtum, en
yngstur var Guðmundur,
er tók við föðurleifð
þeirra systkina og bjó að
Lundum.
Ásgeir og Ragnhildur
eignuðust þrjár dætur.
Elst Jieirra var Sigríður,
er var húsmóðir í Hjarð-
arholti í Stafholtstungum
í mörg ár. Yndisleg kona
og móðir og góð húsmóð-
ir, hagsýn og Jnifin, svo
að heimili hennar bar af
öðrum heimilum fyrir fallega umgengni og þrifnað. —
Oddný fór ung til Vesturheims og giftist þar. Hún heim-
sótti ættjörð sína, ásarnt Láru dóttur sinni, eftir 59 ára
fjarveru, árið 1947.
Guðrún var yngst af {Dessum systkinum, sem öll eru nú
dáin, nema Oddný, sem býr hjá börnum sínum í Winni-
peg og nýtur ástríkis þeirra eftir mikið og erfitt lífsstarf.
Guðrún fór vestur um haf árið 1893. — Ári síðar, 4.
nóv. 1894, giftist Iiún Finni Jónssyni frá Melum í Hrúta-
firði. Þau bjuggu allan sinn búskap í Winnipeg, um
54 ár.
Fyrstu árin vann Finnur við verslun, en síðar var hann
um tíma með-ritstjóri við „Lögberg". — Guðrún vann
að saumum o. fl. Á Jjann Iiátt aflaði hún heimilinu mik-
illa tekna.
Hún tók mikinn þátt í fjelagsmálum íslendinga. Fyrst
við hlið frú Láru Bjarnason í kirkjufjelagi kvenna, fyrsta
2
Guðrún Ásgeirsclóttir Johnson.