Hlín - 01.01.1949, Blaðsíða 27
Hlín
25
Hjóiiin Gísli Jónsson og Guðrún H. Finnsdóttir.
Höfðu þær sögur hennar einnig að verðugu aflað henni
víðtækra vinsælda beggja megin hafsins.
Guðrún skáldkona var austfirsk að ætt, fædd að Geir-
ólfsstöðum í Skriðdal þ. 6. febrúar 1884. Foreldrar hennar
voru Finnur F. Björnsson og Bergþóra Helgadóttir, er
bjuggu á nefndum bæ, valinkunn merkishjón. Árið 1902
giftist Guðrún eftirlifandi manni sínum, Gísla Jónssyni,
skáldi og ritstjóra, frá Háreksstöðum í Jökuldalsheiði, og
fluttust þau vestur um haf til Winnipeg árið 1904 og
höfðu jaínan síðan verið búsett þar í borg.
Þau eignuðust fimm börn, ein dóttir, Unnur að nafni,
hið mesta efnisbarn, dó í æsku, en hin, sem upp komust,
eru Helgi, dr. phil. og prófessor í jarðfræði við Rutgers
University, í New Brunswick í New Jersey-ríki, ágætur
vísindamaður, Mrs. Bergþóra Robson í Montreal, Mrs.
Gyda Hurst og Mrs. Ragna St. John, báðar í Winnipeg.
Oll eru börn þessi hin mannvænlegustu og prýðilega
gefin, eins og þau eiga kyn til, og mentuð vel, því að
foreldrar þeirra styrktu þau til háskólanáms. Er þar, sem