Hlín - 01.01.1949, Side 89
Hlín
87
Línstöngin er hol að innan, en á xnilli ystu himnunnar
og trjáfrauðsins, sem bindur jurtina saman, eru þræðirn-
ir, sem spunnið er úr og kallast lín.
Loftslagið iijer hefur öll þau ár, sem jeg hefi ræktað
lín virst hentugt. — Ræktun þess er þá einnig talin gefast
best í þeim löndum sem liggja að sjó. — Frá gamalli tíð
er selta í jarðveginum talin nauðsynleg, en ekki þykir
það fullrannsakað að hverju leyti það sje betra.
Jeg hefi oftast nær sáð líni fyrst í maí, hafa oft komið
næturfrost eftir sáningu, og hefur mjer ekki virst það hafa
veruleg áhrif á línið. — Fræið er líka einkar harðgert,
þar sem Jiað geymir í sjer óvenjumikla olíu. Vaxtartím-
inn er frá 100 upp í 120 dagar, en nokkuð fer það eftir
veðráttunni. — Jarðvegur er hjer víðast hvar mjög auð-
veldur og ljettur meðferðar, en ljett og dálítið leirbland-
in og deig jörð er hentug fyrir línrækt. — Eftir jarðvegs-
rannsókn, sem gerð var í Svalöv á íslenskri mold, þá
sprettur tegundin Herkules og Blenda best þar í landi í
svipuðum jarðvegi- en tegund sú sem jeg liefi notað árum
saman heitir Stormont Gossamer og er írskur stofn, og
hefur hann gefist vel. — Það má ekki sá líni þar sem ill-
gresi er fyrir, er því best að plægja upp grasvörð að haust-
inu og herfa síðan að vorinu, ef moldin er hrjúf þarf
ekki að herfa yfir sáningu heldur aðeins valta. — Tilbúin
áburður er hentugastur, það er auðvelt að dreifa honum
jafnt yfir. Á 1000 fermetra svæði þarf 14 kg. fræ, 28. kg.
algildan áburð og 1 kg. kali. — Saltpjetri er gott að
dreifa yfir um miðjan júlí.
Við upptöku línsins er þess að gæta, að það sje jafnt í
rótarendann, og það sje lagt reglulega, svo það flókni
ekki. Þegar línið hefur verið dregið upp og látið liggja
á jörðunni í 4 til 5 daga, er það reist við og látið þorna,
síðan er því safnað saman í bindi og geymt sem órotið lín
þar til vinna skal úr því.
Það er að minsta kosti á fernan hátt að liægt er að