Hlín - 01.01.1949, Side 115
Hlín
113
KVEÐJUORÐ
sem síra Valdemar J. Eylands flutti í Ríkis-
útvarpið í Reykjavík 20. júlí 1948.
Þegar jeg kom hingað til landsins fyrir ári síðan, sýndi
Ríkisútvarpið mjer þá vinsemd að gefa mjer tækifæri til
að flytja nokkur ávarpsorð, ásamt kveðjum frá íslending-
um vestan hafs. — Og nú, þegar jeg er um það bil að
hverfa hjeðan aftur, gefst mjer kostur á að koma lijer
fram með þakkir og kveðjur.
Jeg vil þá fyrst og fremst þakka hlutaðeigandi ernbætt-
ismönnum ríkis og kirkju fyrir alla aðstoð þeirra í sam-
bandi við komu mína og dvölina hjer. Jeg þakka fyrir
þetta, ekki aðeins fyrir hönd sjálfs mín. heldur einnig
í nafni Vestur-íslendinga, því að þeirn mun ljúft að við-
urkenna, að fjölmargir þeirra liafi liaft mikla ánægju og
gagn af þessum verkaskiftum, sem fyrir atbeina áhuga-
manna hjer heima hafa átt sjer stað á árinu milli mín og
síra Eiríks Brynjólfssonar á Útskálum. — Hjer er um
nýjan þátt að ræða í samvinnu heimaþjóðarinnar við ís-
lenska þjóðarbrotið vestra. — Margir okkar, sem vestra
dveljum, ólum þá von í brjósti, að verkaskifti af Jressu
tagi gæti orðið til blessunar, til Jress að auka okkar and-
legan þrótl:, efla þjóðræknisstarfsemi okkar og efla við-
leitni manna til að skilja, meta og varðveita menningar-
erfðir okkar vestra. — Nú er Jressi von orðin að vissu,
bygð á þeirri reynslu, sem árið hefir fært. — Jeg hygg ó-
hætt muni að fullyrða, að verkaskiftingin hafi tekist
prýðilega, að minsta kosti að því er snertir kollega rninn,
sem vestur fór. — Hann hefir notið mikilla vinsælda
vestra, verið mjög til hans leitað um ræðuhöld við hin
margvíslegustu tækifæri, og ávalt hefir hann komið fram
kirkjunni og íslandi til hins mesta sóma. — ísland getur
ekki gert löndum okkar vestra meiri greiða en þann að
8