Hlín - 01.01.1949, Side 125
Hlín
123
Hofsdeild Kvenfjelags Vopnafjarðar
(25 ára minning.)
Fyrir fáum dögum voru liðin 25 ár síðan nokkrar kon-
ur hjer í sveitinni gengu í Kvenfjelag Vopnafjarðar og
stofnuðu hjer í sveitinni sjerstaka deild úr fjelaginu. —
Þetta var ekki stór viðburður í þá daga, og það er heldur
ekki stór viðburður nú í dag. þótt við kvenfjelagskonur
höfum sett upp kaffiketilinn og boðið nokkrum kunn-
ingjum og öðrum velunnurum fjelagsskaparins til kaffi-
drykkju með okkur í kveld í tilefni af þessu 25 ára af-
mæli.
En þótt kvenfjelagsskapurinn láti ekki mikið yfir sjer,
þá fanst okkur fjelagskonunum þó viðeigandi að minn-
ast lijer á nokkur atriði um stofnun hans og störf á þess-
um liðnu árum. — Þær voru 18 konurnar, sem stofnuðu
þessa deild í upphafi. Síðan hefur oltið á ýmsu með fje-
lagatöluna. Fæstar vorum við 12, en flestar 29, það var
árið 1925, en sú fallega tala stóð aðeins eitt ár. — Oftast
höfum við verið frá 14—16. — Af stofnendunum eru nú
aðeins 4 konur eftir í deildinni. Þrjár af þeim hafa setið
í stjórn hennar frá upphafi. Það eru þær Guðbjörg Hjart-
ardóttir, formaður, Oddný Methúsalemsdóttir, gjaldkeri.
og Guðrún Sigurjónsdóttir, ritari. — Fjórða konan er Val-
gerður Helgadóttir í Ytri-Hlíð. — Sökum vanheilsu gat
hún, því miður, ekki verið stödd hjer í kvöld. En hún
hefur sent fjelaginu sína bestu kveðju og 100 kr. gjöf, og
óskað eftir. að einhver bágstaddur mætti njóta hennar
við tækifæri. — Við fjelagskonur sendum Valgerði hug-
heilar kveðjur í kvöld, með þökk fyrir störfin í fjelaginu,
og þökk fyrir þessa rausnarlegu gjöf (af litlum efnum),
sem lýsir vel hugarfari þessarar ágætu konu til fjelags-
skaparins fyrr og síðar.
Ein af fyrstu stofnendum fjelagsins er dáin: Svafa Víg-
lundsdóttir frá Hauksstöðum, 11 konurnar liafa flust
burtu, en hinar hafa af öðrum ástæðum ekki getað sint