Hlín - 01.01.1953, Blaðsíða 8
6
Hlín
Verður hjer með nokkrum dæmurn sýnd árvekni
kvenna og ötulleiki í fjelagsstarfi. — Það er aðallega
tvent, sem einkennir fjelagssamtök íslenskra kvenna:
Ágætt samkomulag og frábær dugnaður að afla fjár. —
Frá öndverðu hefur þess verið gætt að varast að taka þau
mál til meðferðar, sem fyrirsjáanlega myndu leiða til
sundurþykkis.
Fjölmörg hafa sambandsfjelögin sömu eða svipaða
starfstilhögun: Hafa t. d. samvinnu við sveitar- eða ung-
mennafjelög um stofnun fjelagsheimilis. Þau safna fje
með skemtunum, munasölum, hlutaveltum, söngskemt-
unum og leikstarfsemi. — Flest hafa þau barna- og gamal-
mennaskemtanir árlega. — Samkomur kvenfjelaga hafa
jafnan þótt fara vel frarn, öðrum fremur.
Það er ótrúlegt, hve vel kvenfjelögunum hefur gengið
fjáröflun sín, þegar þess er gætt, hve mörgu þörfu og góðu
þau hafa veitt stuðning, og mörg eiga þau digra sjóði.
Þeim verður jafnan vei til með stuðning og aðsókn. —
Sum sýslufjelög og búnaðarsambönd liafa styrkt kven-
fjelagasambönd sín myndarlega.*
Nokkur kvenfjelög, sem eru sjerstaklega stórtæk í söfn-
un sinni, eru t. d. Thorvaldsensijelagið í Reykjavík með
Barnauppeldissjóð sinn, „Hringurinn" í Reykjavík með
Barnaspítalasjóð sinn, Kvenrjettindafjelagið í Reykjavík
með Menningar- og minningarsjóð kvenna. — Kven-
fjelagasamband Suður-Þingeyskra kvenna, elsta kvenna-
samband landsins, með sinn Menningar- og minningar-
sjóð. — Kvenfjelagið „Framtíðin“, Akureyri, með stuðn-
ing sinn við Fjórðungssjúkrahús og Elliheimili. — Kven-
fjelagið „Hlíf“, Akureyri, með stofnun Barnaheimilisins
„Pálmholt" og Samband Austur-Húnvetnskra kvenna,
Kvenfjelag Akraness og „Líkn“, Vestmannaeyjum, með
liöfðinglegum stuðningi við sjúkrahús hjeraðs og bæja.
* Stærsta framlagið er að sjálfsögðu fjárveiting ríkisins til
Kvenfjelagasambands Islands, sem öll sambandsfjelög njóta
góðs af.