Hlín - 01.01.1953, Blaðsíða 25
Hlín
23
Vísur þessar sendi dr. Richard Beck, prófessor í Grand
Forks, Norður-Dakota, rnóður sinni, frú Vigfúsínu Beck
frá Litlu-Breiðuvík 1 Reyðarfirði, sem nú er búsett í
Winnipeg, Manitoba, á áttræðisafmæli hennar þ. 29.
júní 1950.
Eins og kvæðið ber með sjer, er það einnig ort í nafni
hins sonar hennar, Jóhanns Þorvaldar Beck, prentsmiðju-
stjóra í Winnipeg. — Frú Vigfúsína er enn hin ernasta,
þó komin sje á níræðisaldur, nerna hvað sjónin er að
miklu leyti farin.
MINNINGARORÐ UM
Þórunni Hjörleifsdóttur, ljósmóður,
jrá Skinnastað i Axarfirði.
Mig hefur lengi langað til að bregða upp nokkrum
nryndum úr lífi ljósu minnar, sem jeg bef frá barnæsku
litið upp til sökum dugnaðar hennar og dáðríks lífs.
Þórunn lijet hún, Hjörleifsdóttir, Guttormssonar,
prests að Skinnastað í Axarfirði, og konu hans, Guðlaug-
ar Björnsdóttur, Vigfússonar, prests að Kirkjubæ í Hró-
arstungu .— Þórunn ólst upp á hinum undurfagra fæð-
ingarstað sínum, Skinnastað, í stórurn, glæstum og glöð-
um systkinahóp. — Þannig leið æskan sem einn sólskins-
dagur, þar til hún var komin á átjánda ár.
I þann mund ljet faðir hennar byggja kirkju á Skinna-
stað, og skyldi nú ekkert sparað til þess að hið nýja guðs-
hús yrði veglegt. — Til að mála kirkjuna var fenginn hinn
besti málari, senr tök voru á: Arngrímur Gíslason, listmál-
ari, frá Skörðum í Suður-Þingeyjarsýslu. — Bættist nú
þeim systkinum góður fjelagi, þar sem Arngrímur var. —
Systkinin voru öll mjög sönghneigð og talin hafa ágætar