Hlín - 01.01.1953, Blaðsíða 75
Hlin
73
ur, ungur eða gamall, sem leggur þessum málum lið, lief-
ur um leið lagt skerf til þess að gera þjóðfjelag vort heil-
brigðara, þróttmeira og heillaríkara en það er nú. — I
þessu máli, sem mörgum öðrurn, ríður íslensku þjóðinni á
að enginn skerist úr leik.
Ferming.
Síra SIGTRYGGUR GUÐLAUGSSON,
Núpi i Dýrafirði.
„Náð sje með yður og friður. . . . “
Kærir bræður og systur. — Við komum í Jesú nafni
hjer saman í dag til þess að lofa Guð fyrir dásemdir lians
og fræðast um blessaðan vilja hans, láta í ljósi hjartans
tilfinningar vorar um samfjelag vort við liann og styrkjast
í elsku hans og hlýðni við boðorð hans. — Vjer minnumst
þess sjerstaklega á þessum hátíðisdegi, hversu gæska Guðs
vill leggja oss lið og krafta anda'sins, til þess að sú guðs-
dýrkun vor, sem nú var minst, megi verða í anda og sann-
leika og bera ávexti sína út í dagfar vort og lífsbreytni
alla. — Það er þá þessu ofur samsvarandi, að vjer tökum
nú upp í guðsþjónustu vora þá athöfn, eða guðsþjónustu-
grein, sem flestum söfnuðum kristinnar kirkju hefur um
aldirnar verið einkar hugnæm og eins og lífsþráður vona
og óska elskuðum afkvæmum til handa. — Það er sú stað-
festing og játning skírnarsáttmálans, sem Guði færð ung-
menni gera sjálf, eftir að hafa fræðst nokkuð um skapara
sinn, frelsara og huggara, um vilja lians og hvernig honurn
verður þjónað sem vjer vitum lífinu farsælast af öllu. —
Heilög gleði er það foreldrum og öðrum ástvinum sáln-
anna ungu, sem enn dyljast í veiku frumgervi bernsk-
unnar, að vita í trúarsannfæringu gæskuríkan Guð taka