Hlín - 01.01.1953, Blaðsíða 65
Hlin
63
að geta lært þá list að vera áhyggjulaus, þurfum við að
fara að eins og María og gefa okkur tima til að setjast við
fótskör Frelsarans. Þar fáum við að læra það, að Drottinn
mun vel fyrir sjá, og það er óhætt að treysta jiví, að hann
gefur nýja krafta með nýjum degi.
En þetta áhyggjuleysi á ekkert skylt við fyrirhyggju-
leysi, heldur Jrvert á móti. Það er dásamleg hvíld í því að
geta falið Drottni hvert eitt starf, og mega treysta á að
hans blessun hvíli yfir jrví. — í staðinn fyrir áhyggjur og
kvíða fyrir komandi degi kemur friður og hvíld. — Þessi
örugga tilfinning, er sá einn Jrekkir, sem hefur fundið
vin, sem hann treystir takmarkalaust, og einmitt fyrir
þetta öryggi verður sú húsmóðir, senr setið hefur við fót-
skör Jesú, hæfari til starfa en hin, því hún slítur ekki
taugunum að þarflausu við óþarfa áhyggjur.
Áhrif kristindómsins á húsmóðurstörfin eru því ómet-
anleg, Jrví Jrað getur valdið úrslitum um líkamlega og
andlega heilsu húsmóðurinnar, livort hún man eftir því
eða ekki.
Móðurstarfið:
Móðurástin er ein göfugasta tilfinning mannlegs
hjarta. — Hver er sú móðir, sem telur sig mega svifta
barnið sitt því, sem miðar að auknu heilbrigði þess líkam-
lega, ef það er á hennar valdi að veita það. — En hversu
miklu síður megum við þá ræna börnin okkar þeirri
blessun að kenna Jreim að þekkja Jesúm Krist, og bera
þau á bænarörmum til hans. — Jeg hef einhversstaðar
lesið, að sú móðir, sem biður fyrir barninu sínu gefi því
dýrmætari gjöf en þó lnin ætti auð fjár því til lianda.
Jesús segir: „Leyfið börnunum að koma til mín og
bannið þeim J:>að ekki, því slíkra er guðsríki.“ — Það
lilýtur fyrst og fremst að vera hlutverk móðurinnar að
leiða barnið til Jesúrn Krists, en því aðeins getur hún int
það hlutverk af hendi, að hún þekki sjálf hvers virði
kristindómurinn er. — Sú móðir, sem ávalt liefur gefið