Hlín - 01.01.1953, Blaðsíða 156
154
Hlín
sjávar, og nú er vefstólssmiðurinn að ljúka við það sem eftir
var, þá á að setja upp handklæði.
Ein af þínum gömlu nemendum frá Svalbarði er ráðskona á
Núpi, hún er að vefa sjer veggrefil. — Við eigum von á 10 þráða
spunavjel í vor frá Villingaholti, eins og þá á Svalbarði. —
Það sameinast 4 heimili um hana.
Hvar fást litlu kembivjelarnar, sem við notuðum á Svalbarði
til að kemba í togið í dýnurnar góðu? — Það er ein til hjer í
Dýrafirði, og við höfum haft hana að láni, en nú erum við að
missa hana. — Mjer finst afleitt að hafa hana ekki til að grípa
til. — S. G.
Úr Saurbæ í Dalasýslu er skrifað veturinn 1952: Formaður
Breiðfirska sambandsins, Theódóra Guðlaugsdóttir, Hóli í
Hvammssveit,kom því til leiðar, að Staðarfellsskólinn tók stúlk-
ur til vefnaðamáms 6 til 8 vikur, eina frá hverju fjelagi í Sam-
bandinu. — Hófst kenslan eftir áramót. — Stúlkan, sem send var
frá okkar fjelagi, óf svo fyrir konurnar handklæði og glugga-
tjöld. — Sumir halda að þetta verði dýrara en að kaupa það í
búð, en jeg segi nei, það verður ódýrara, og svo er þetta menn-
ingar- og metnaðarmál okkar kvennanna, eða á að vera það, að
koma vefnaði inn á hvert einasta heimili, og koma honum til
vegs og virðingar á ný. — „Ef þú ert ekki sjálfur sól, þá getur
þú ef til vill verið reikistjarna"! — Og fyrst jeg á ekki til í
sjálfri mjer ljósmagn til að lýsa upp veg samferðamannanna á
þessu sviði, þá get jeg að minsta kosti reynt að endurspegla það
ljós, sem á mig hefur skinið annarsstaðar frá. — Jeg hef alla tíð
verið hrifin af vefnaði, þó jeg hafi ekki getað sýnt. það í neinu
og aldrei lært hann sjálf.
Því miður er ekki til nema einn vefstóll hjer í sveit, og á
kvenfjelagið og ungmennafjelagið hann í sameiningu, hann hef-
ur ekk verið notaður árum saman, en nú vona jeg að þessi vefn-
aðarkensla glæði áhugann.
Fjelagsstarfsemin er nú fremur hægfara hjer hjá okkur. —
Komum lítið saman vetrarmánuðina. — Það helsta, sem fjelagið
hefur haft til meðferðar, nú í seinni tíð, er að hlynna að kirkj-
unni okkar. — í fyrra gaf það henni altarisklæði og dúk, og nú
fyrir jólin hökul. — Alt eru þetta vandaðir og góðir munir og
kostuðu um 6 þúsund krónur, og nú er efnahagurinn orðinn sv<?
þröngur, í bili, að ekkert er hægt að gera. — E.
Samband Au.-Húnvetnskra kvenna átti 25 ára afmæli á þessu
ári, og hjelt það hátíðlegt með miklum virðuleik 23. júní s.l. —
Afhenti þá stjórn Sambandsins Hjeraðshælinu eitt hundrað
þúsund krónur, sem hinar 10 sambandsdeildir höfðu safnað til