Hlín - 01.01.1953, Blaðsíða 150
148
Hlín
Sitt af hverju.
Úr brjefi frá íslenskri stúlku, sem stundar nám erlendis: Það
sem einna mest gladdi mig við lestur „Hlínar“ að þessu sinni,
var að sjá þar lögin um Heimilishjálpina. — Mjer hefur fundist
vera furðu hljótt um svo þýðingarmikil lög fyrir allar konur í
landinu, og í raun og veru fyrir alla þjóðarheildina. — Daginn
áður en jeg fór frá íslandi í sumar sem leið, bárust þessi lög í
hendur mjer, og hefur þetta mál verið ofarlega í huga mjer síð-
an, og það svo, að jeg kynti mjer fyrirkomulag hliðstæðra fram-
kvæmda bæði í Noregi og Svíþjóð, og sannfærðist um, að ekki
er nóg að samþykkja lög á Alþingi, þeim þarf að fylgja eftir og
nýta út í æsar hlunnindin, sem þau gefa.
Og þá rís sú spurning: Hvaða stúlkur vilja gera heimilishjálp-
ina að starfsgrein sinni, og hvar fá þær mentun til þess? — Á
síðustu árum hefur stúlkum yfirleitt þótt lítið koma til heimil-
isstarfa, og fáar vilja gefa sig við þeim. — Til þess hafa þá helst
valist stúlkur, sem ekki hafa fengið mentun til annara starfa. —
Að heimilisstörfum virðast allir geta gengið án nokkurs und-
irbúnings. — Heimilið, sem er eitt stærsta og þýðingarmesta
starfssvið þjóðfjelagsins, fær sjaldan vinnukrafta, sem hafa
mentast í því skyni.
Til heimilishjálparinnar mega með engu móti veljast óment-
aðar stúlkur. — Það er ekki nóg, að þær sjeu myndarlegar og
góðar stúlkur, heldur þurfa þær að geta sett sig inn í störf og
háttu heimilanna, sem þær koma á. — Þær þurfa að geta tekið
við störfum húsmóðurinnar og haldið þeim í sem líkustu horfi
og þegar hún var við störfin. — Þær þurfa að geta vakið traust
fólksins. Þær þurfa að kunna að fara með peninga, þær þurfa
að skilja hugsunarhátt fólksins, sem þær vinna hjá.
Lögin gera ráð fyrir, að stúlkur, sem ráða sig til þessara starfa
hafi sjerstaka mentun í starfandi Húsmæðraskólum í landinu.
— Sjermentxm þarf, svo að sem flestar landsins konur geti notið
góðs af þessum ágætu lögum.
Jeg hef hugleitt þetta mikið í vetur, og bygt fjölda loftkast-
ala, sem allir hrynja um leið og mjer dettur í hug sú fyrirlitning,
sem íslenskar stúlkur hafa á hússtörfum. — Svo er nú líka ann-
að, sem þarf að taka til greina: Heimilishjálpin verður að fá við-
unandi starfsskilyrði hvað kaup, aðbúnað og vinnutíma snertir,
fyr fást ungar stúlkur ekki til þessara starfa. — S.
Kona á Vesturlandi skrifar: Þegar jeg les æfiminningar í
„Hlín“ og víðar, dettur mjer í hug sjerlega ein kona, sem var