Hlín - 01.01.1953, Blaðsíða 13
Hlín
11
Á seinni árum hefur Sambandið gengist fyrir því að
kennarar innan bygðanna, æfðu börn af íslenskum upp-
runa í framsögn og söng íslenskra ljóða, og hafa um 300
börn af íslenskum uppruna tekið þátt í framsögn ljóða á
samkomum og æft söng á íslensku. — Var það yndislegt að
lieyra börnin lesa og syngja gömlu, fallegu íslensku kvæð-
in með skilningi og tilfinningu.
Kvenfjelagasambancl Sameinaða kirkjufjelagsins er 27
ára gamalt, fjelagsdeildir 9 með 132 meðlimum. — Frú
María Björnson (Laxdal) var formaður Sambandsins í
20 ár.
Satnbandið kom upp sumarheimili fyrir börn við
Hnausa á strönd Winnipegvatns 1937, og hefur starfrækt
það síðan. — í skýrslu frá heimilinu segir: Ullarsæng er
í'hverju rúmi. Konurnar bjuggu þær allar til sjálfar. Og
prestur þeirra, síra Eyjólfur Melan, sá um smíðið á bygg-
ingunni og vann við hana sjálfur endurgjaldslaust. —
Tveir merkir borgarar ánöfnuðu heimilinu 500 dali í
erfðaskrá sinni. — Satnbandið gefur út ársrit, ásamt sam-
bandi karla, er það „Brautin". Það rit er nú 10 ára, ágætt
rit. — Ritstjóri kvennadeildar var fyrst framan af Guðrún
H. Jónsson, skáldkona. — Ritstjóri er nú María Björnson.
(Frú María kom heim til íslands, ásamt manni sínum,
Sveini lækni, 1950, og dvöldu þau lijer nokkra mánuði
og fóru víða um land. — Eftir veru sína hjer hafa þau
bæði flutt erindi og skrifað um ferð sína.)
Samb.fjelögin gangast fyrir sýningum á handavinnu
af ýmsu tagi, íslensku'konurnar vestanhafs hafa ekki týnt
niður handavinnunni, þó þær sjeu komnar í aðra heims-
álfu. — Þá liafa íslensku konurnar oft tekið þátt í sýning-
um þjóðbúninga, sem lnn ýmsu þjóðarbrot hafa efnt til,
og jafnan borið sigur úr býtum í þeirri kepni. — Ejall-
konan, prýdd íslenska faldbúningnum, sórnir sjer vel á
íslendingadaginn á Girnli. — Mörg fjelög eiga íslenskt