Hlín - 01.01.1953, Síða 106
104
Hlin
línur til að þakka yður fyrir vjelina og yðar vinsamlega
brjef. — Það var auðvelt að setja saman vjelina, aðeins
einn hlutur varð eftir, lítil, rauðmáluð trjekeila, sem jeg
veit ekki hvar á að vera. — Jeg er mjög ánægður með vjel-
ina, og öllum, sem hafa sjeð hana, líkar hún vel. — Við
höfum ekki spunnið ennþá, því ullin er ókembd enn, en
jeg er viss um að það gengur vel. — Það var mjög skemti-
leg vinna að setja saman vjelina, þó jeg hafi aldrei sjeð
slíka vjel áður og sje ekki smiður sjálfur.
Jeg á heima í Helsingfors nær því alt árið, kindurnar
eru á eyju í 100 km. fjarlægð, og þar erum við á sumrin. —
Við eigum nú hjer um bil 200 fjár. Það er stór eyja, þar
búa 150 manns. — Jeg álít að fjárrækt borgi sig aðeins, ef
maður á mjög frjósamar kindur, sem gefa af sjer mörg
lömb, og við höfum þessvegna reynt að fá lambafjöldann
til að aukast, með því að setja á þær frjósömustu. Flestar
eru tvílembdar, en hjer um bil þriðja hver ær er vanalega
þrílembd, og nokkrar hala verið fjórlembdar og jafnvel
fimmlembdar.
Jeg er 53 ára gamall og kona mín jalngömul. — Við
eigum tvö börn, dóttur, sem heitir Malin, og sem er ný-
lega trúlofuð, og son, Karl Henrik að nafni, sem verður
stúdent að ári.
. Jeg þekki marga, sem hafa verið á íslandi, og sem hafa
sagt mjer mikið frá yðar landi, og mig langar mjög mikið
til að koma þangað einhverntíma, en úr því verður ef til
vill aldrei.
Brjef yðar gladdi mig sjerstaklega mikið, og jeg þakka
yður hjartanlega fyrir það. — Kona mín og börn biðja mig
að skila bestu kveðju til yðar og þakklæti fyrir ágæta vjel.
Hjerna er maður, sem hefur verið fjórum sinnum á
íslandi, og hann hefur þýtt brjefið á yðar mál.
Með hjartanlegustu kveðjum.
Henrik Renqvist.