Morgunn - 01.06.1934, Blaðsíða 69
M0R6UNN
63
hann stundum hafa flutt það heim til sín á bát, og þá
hefði þessi sonur sinn einatt verið með sér, þó lítill væri,
en þetta gerðist áður en eg kom á Austurland.
„Hann sýnir mér nú lítinn bát“, sagði Jakob. ,,Hann
segir mér, að þeir hafi stundum farið á honum í fjörðinn
og einatt lengra, en jafnframt sýnir hann mér stærri bát.
Eg sé piltinn, sem eg er að segja þér frá, í stærri bátnum,
og hann sýnir mér tvo menn með sér. Eg sé þá samt ekki
eins skýrt eins og hann, en fremst í bátnum, sko, þegar
honum er róið áfram, sé eg sitja aldraðan mann, hann
er með alskegg. í miðjum bátnum sé eg enn fremur
ungan mann, sé hann að vísu óglögt, en eldri maðurinn
er áreiðanlega nákomnari þessum pilti, sem eg er að
lýsa, en hinn maðurinn, er eg sé óskýrast. En þessi pilt-
ur, sem er hjá þér núna, situr aftast í bátnum. Þessir
menn hafa áreiðanlega einhvern tíma róið með honum
á þessum bát. Sá, sem situr fremst, er elztur, eins og eg
sagði, hann hefir alskegg“.
Þetta er hárrétt, bæði lýsingin af bátnum og mönn-
unum. Eldri maðurinn, er Jakob segist sjá á bátnum með
piltinum, er hann er að lýsa, er faðir hans, en ungi mað-
urinn, er hann kveðst sjá óskýrast, er sjómaður, er reri
með þeim eitt sumar. Þeir sátu þannig í bátnum eins og
Jakob lýsir.
„En hvað þetta hefir verið góður drengur“, hélt
Jakob áfram, „það hafa áreiðanlega margir saknað
hans“.
Fram að þessu hafði eg ekki spurt neins. Jakob
hélt umsögn sinni um hann áfram, og lýsti því, er hann
kvað hann sýna sér, viðstöðulaust, hratt og greinilega, án
þess nokkurt hlé yrði á, og eg átti fult í fangi með að
hafa undan við að rita jafnóðum það, er hann
sagði. En nú varð örlítil þögn af hálfu Jakobs. Eg not-
aði tækifærið og spurði. „Langar þig ekki til að senda
einhverjum fleirum skilaboð?“ „Eg er einmitt að gera
það núna“, lét hann Jakob svara aftur. „Eg veit, hver