Morgunn - 01.06.1934, Blaðsíða 122
116
MORGUNN
menn, sem hafi haft furðulega þekkingu á og vald yfir
margvíslegum duldum kröftum tilverunnar.
Fyrir fáum árum kom út einkennileg ritgjörð á ís-
lenzku, sem þá vakti mikla athygli, en flestir eru ef til
vill búnir að gleyma nú. Það var Eldvígslan eftir Þór-
berg Þórðarson. Höfundurinn hafði um margra ára skeið
verið hugfanginn af austurlenzkum trúarhugmyndum,
og þótt ritgjörð hans sé oft með kímnislegum blæ, þá
dylst þó ekki, að honum er alvara er hann segir, að það
sé vottur þess, að kristindómur landsmanna sé á röng-
um brautum, er kirkjunnar menn séu þess ómegnugir
að gjöra kraftaverk. Hann lítur sem sé fyrst og fremst
á trúarbrögðin þeim augum, að þau sé leit mannsins og
lausn á því, hvernig honum eigi að auðnast að ná valdi
yfir öflum þess heims, sem ekki er sýnilegur. I raun og
veru er hann því staddur á sama ferlinum og höfundur-
inn að Magnificent Obsession. Og báðir eru á röngum
ferli. Þeir eru það sökum þess, að hversu miklu andlegu
afli, sem manni kann að auðnast að ná, þá er það ekki
hin allra minsta sönnun þess, að maðurinn sé ekki eftir
sem áður illmenni. Það er sem sé ekkert b e i n t sam-
band á milli krafta mannsins og siðferðileika hans. Eg
er að vísu viss um, að hver sá maður, sem verulega drekk-
ur inn í sig' og tileinkar sér hugsanir og tilfinningalíf
hinna æðstu andlegu spekinga, er máttarmeiri maður en
áður, því að þessar hugsanir eru fyrst og fremst styrk-
leikur. En það sem skilur þessa spekinga frá öðrum
mönnum er það fyrst og fremst, að þeir beita kröftum
sínum blátt áfram af eðlisnauðsyn í ákveðna átt, sem til
hamingju horfir fyrir aðra menn. Þeir gjöra ekki góð-
verk til þess að verða máttmeiri, heldur gjöra þeir góð-
verk af því að máttur þeirra er góður. Og hér er það, sem
skilur þá frá svo mörgu, sem á öllum tímum hefir bland-
ast saman við trúarbrögð mannanna. Páll postuli er á
réttum brautum, þegar hann segir, að honum væri með
öllu gagnslaust að hafa þrek til þess að gefa alt, sem