Morgunn - 01.06.1934, Blaðsíða 74
68
M 0 11 G U N N
en gluggarnir eru nokkuð stórir. Það hefir ekki verið
búið í því, en stundum hefir fólk safnast þarna saman.
Það hefir áreiðanlega komið þarna í einhverjum tilgangi,
það bæði talar þarna og syngur er það kemur þarna.
Það hefir verið einhver félagsskapur þarna, og hann hef-
ir eitthvað verið við hann riðinn. Eg held þeir hafi stund-
um glímt þarna, og skemt sér við eitt og annað. Það
hefir hringsnúist þarna, sko, dansað þar, og þá hefir
verið spilað á þetta, sem er dregið sundur og saman, æ,
eg man ekki hvað það heitir, sko, þetta, sem spilað er á
þegar verið er að dansa, þú skilur hvað eg á við.
Þú hefir líka stundum komið þarna, þú hefir gert
þar eitthvað, þú hefir víst talað þarna, og stundum hef-
irðu haft eitthvað skrifað með þér þangað, og fólkið
syngur þarna. En, bíðum nú við. Söng það nokkurn tíma
sálma þarna?“ ,,Já, stundum kom það fyrir“, mælti eg.
,,En mér þótti það bara svo óskiljanlegt“, mælti Jakob.
„Þetta hús líktist þó ekki neinni kirkju“.
Jakob flutti nú nokkur fleiri skilaboð frá honum,
og við skiftumst á nokkurum orðum fyrir milligöngu
hans, en þar sem flest af því snerti mig aðeins persónu-
lega, og aðra hans nánustu, hirði eg ekki um að skýra
nánar frá því. Flest af því, sem við ræddum um þá stund
hefir aðeins sérstakt sannanagildi fyrir hlutaðeigendur,
sumt að vísu engu lakara en það, sem er almennara eðlis,
en margt af því þess eðlis, að hlutaðeigendur vilja eiga
það einir.
1 sambandi við þenna fund og endurminningar þær,
er þar eru dregnar fram af þeim er þar kvaðst vera að
verki, skal eg taka þetta fram. Lýsing Jakobs af stað-
háttum, umhverfi og landslagi, húsum og öðru, sem eg
hefi ný-lokið við að segja ykkur frá, er hárnákvæm og
sönn í öllum atriðum, og eg held, að ekki væri unt að
gefa hana sannari eða réttari en Jakob gerir. Ungmenna-
félag starfaði í hreppnum, og tók hann mikinn virkan
þátt í starfsemi þess. í sambandi við þann félagsskap