Vaki - 01.09.1952, Page 9

Vaki - 01.09.1952, Page 9
vill greina hana írá því sem á undan hefur farið. Það vantaði viðmiðun til að íá metið hana réttu mati. Ég gat ekki séð einkenni hennar eða stœrð nema í sam- anburði við þá list, sem fyrr hefur verið. Kynni af gamla tímanum hvessa skiln- inginn á þeim nýja. Við einlceg og for- dómalaus kynni af liðinni tíð er betra að átta sig á list dagsins. Hins vegar er eng- inn vafi á, að heiðarleg viðleitni til skiln- ings á því, sem er að gerast í list nútím- ans, gerir menn hœfari til að glöggva sig á fornri list, koma auga á það sem tjáði svo ófallvölt sannindi, að verk hennar búa með okkur jafn lifandi og þá er þau urðu til. Myndlist almennt t allri rannsókn er beitt tveim reglurrr. Önnur er sú, að ganga út frá hugmynd- unum og athuga hvert samband þeirra er við veruleikann. Hin er sú að kanna veruleikann fyrst og leiða af þeirri rann- sókn ákveðnar hugmyndir. Hvor þeirra um sig líkist leið milli tveggja staða: Maður hefur ekki kynnzt landinu fyrr en farið hefur verið báðar áttir. Þannig eigum við um tvennt að velja, er við stöndum and- spœnis þessum torráða og margþœtta veruleik, listinni, og œtlum að gera hann að andlegri eign okkar, skilja hann, sigra hann. Annars vegar getum við leitað til þeirra hugmynda sem ríkjandi eru eða hafa ríkt um listina; hins vegar má ganga beint að listaverkinu, skoða það eins gaumgœfilega og unnt er og draga af þeirri rannsókn okkar eigin skilning á henni. Göngum fyrst huglœgari leiðina. * Þrjár eru þœr greinir mannlegrar þekk- ingar, sem einkum fást við list: Listasaga, fagurfrœði og gagnrýni. Til þeirra ber að leita um hjálp í rannsókn okkar. Án þeirra er tœpast niðurstöðu að vœnta. 1 þessum greinum hefur sameinazt öll rannsóknar- viðleitni mannsins á sviðum lista frá því er hann tók að gera sér grein fyrir til- veru sinni, og þœr eru ávöxturinn af leit hans um þessi svið. Eins og nafnið bendir til, veitir listasagan upplýsingar um ald- ur listaverka og höfunda þeirra: hún skip- ar þeim niður í ákveðin tímabil, sýnir við hvaða skilyrði, efnisleg og andleg, þau voru unnin. Hún ber mönnum skoðanir og hugmyndir listamanna liðinna alda um verk sín, sem og þeirra manna er nutu þessara verka og veitir þannig ómetan- lega yfirsýn um fortíðina. Fagurfrœðin fœst við hið fagra og áhrif þau, sem það vekur í manninum, hið fagra ekki fremur í list en í náttúrunni. Hún er nokkurs konar heimspeki listanna og reynir að skýra hversu náttúran og verkin orka á hug mannsins. 1 dag er fag- urfrœðin orðin ein grein sálfrœðinnar og fœst einkum við hlutlœga rannsókn á á- hrifum ákveðinna forma á skynvit manns- ins. Gagnrýnin leggur fyrir sig að meta og vega gildi listaverks. En um leið og hún gerist dómari leitast hún við að skýra verkið, opna það augum skoðandans, hún leiðbeinir honum, opnar augu hans fyrir gildi þess og gerist á þann veg uppalari. Gagnrýnin er því tengiliður listamanns og almennings sem nýtur verka hans. Það er fljótséð á þessari skilgreiningu, að okkur er ekki auðið að sœkja langt í leit okkar að inntaki listarinnar, ef við njótum ekki leiðsagnar þessara þriggja greina. Hver þeirra um sig felur í sér markmið þeirrar leitar. * Við þurfum ekki langrar umhugsunar við til að sjá, hversu snar þáttur listin hefur verið í daglegu lífi mannsins á jörð- inni allt frá upphafi vega. Tökum tvö dœmi, tvœr andstœður: frummanninn og nútímamanninn. Jafnskjótt og frummaður- TlMARITIÐ VAKI 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Vaki

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.