Vaki - 01.09.1952, Page 55

Vaki - 01.09.1952, Page 55
Kvikmyndalist THOMAS MILNE HÖFUNDUR þessarar greinar er ungur Breti, fæddur á Malakkaskaga, en hefur dvalizt heima í Skotlandi við nám seinna, utan hvað hann gegndi herþjónustu í þrjú ár. Hann stundaði nám i enskum og frönskum bók- menntum við skozka háskóla. Eftir styrjöldina dvaldist hann um tíma í Paris og stundaöi leikhús og kvikmyndir af miklum áhuga. Sjálfur hefur hann von um að geta skrifað fyrir leiksvið. Greinin er samin fyrir Vaka, og mun vonandi koma að gagni. Kvikmyndin í dag 'hefur þá óheppi- legu aðstöðu, að hafa vaxið mjög, en áhorfendur krefjast af henni, að hún sé enn á bernskuskeiði, nokkurs konar Peter Pan listheimsins, sem er til skemmtunar eins og ungbörn, en mun aldrei vaxa og verða raunveruleg list. Venjulegum menntuðum manni, er finnst það ekki afsökunarvert þótt hann lesi skáldsögu, eftir t. d. Graham Greene eða Koestler, finnst hann verða að segja um leið og hann kemur út úr kvikmynda- húsinu, að öllum líkindum skömmustu- legur á svip: Æ, ég var búinn að vinna svo mikið, að mér fannst ég hafa þörf fyrir smá upplyftingu í kvöld. Þessi of- látungslega afstaða til kvikmyndarinn- ar, — að líta aðeins á hana sem skemmt- un, á sér undraverða samstöðu í sögu skáldsögunnar á hennar bernskuskeiði. Það er mjög erfitt að tímasetja ná- kvæmlega framkomu skáldsögunnar, sérstaklega vegna þess, að engum hefur nokkru sinni heppnazt að gefa fullnægj- andi skýrgreiningu á formi skáldsög- unnar, benda greinilega á þau lögmál, sem hún lýtur, frábrugðnum sagnakveð- skapar og smásagna. Á Englandi er hún venjulega talin verða til á 18. öld með tilkomu Richardsons og hinna sálfræði- legu verka hans, Clarissu og Pamelu. Listin að segja sögu á sér miklu eldri menjar, Homeros, Apuleius, íslendinga- sögur, Marie de France, Chaucer o. s. frv., en það er augsýnilega ógerlegt að telja verk þessara höfunda til skáld- sagna, skáldsagan er meira en ber frá- sögn eins og Richardson sýnir. Á fyrri tímum voru sögur oft sagðar í kvæðis- formi eða á mjög einfaldan hátt og frá- sögnin stranglega bundin aðalefninu, en óbundið mál skáldsögunnar gefur tak- markalaust leyfi til útþenslu og lýsing- ar á smáatriðum. Skáldsagnahöfundur segir ekki aðeins sögu, hann lýsir líka persónum, þjóðfélagsaðstæðum, sál- fræðilegum orsökum, heimspekilegum gildum o. s. frv. Hið frjálsa form skáldsögunnar vann sér mjög mikla hylli á 18. öld fyrir til- stilli umferðabókasafnanna. Einu vand- kvæðin voru þau, að fólkið las vegna söguþráðarins, vegna ástríðnanna, ótt- ans og skelfingarinnar, sem þær vöktu. TlMARITIÐ VAKI 53
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Vaki

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.