Vaki - 01.09.1952, Side 56

Vaki - 01.09.1952, Side 56
Lítilmótleg skrif voru tekin fram yfir annað, eingöngu vegna þess að þráður- inn var skemmtilegur, æsandi, kitlandi, um undirferli og slægð. En nú á dögum erurn við okkur fyllilega meðvitandi um möguleika skáldsögunnar og lítum á hana sem fullþroskað listfonn. Við sjá- um, að Dostojevski getur sagt sögu eins léttilega og uppáhalds skemmti- sagnahöfundar okkar, en auk þess bætir hann við háleitri sálfræðilegri könnun á manninum, ótta hans og vonum. Þar eð við vitum að mikill skáldsagnahöf- undur verður að segja meir en sniðuga sögu, höfum við lært að meta tilraunir höfunda eins og Proust, James Joyce og Virginiu Wolf, sem varla fást við að segja sögu. Þau nota skáldsöguna til að kanna djúp mannshugans í leit að lífstilgangi. Þannig hafa lesendur smám saman smíðað sér mælikvarða, sem þeir geta mælt við þá höfunda, er hafa risið hæst upp yfir svið hinnar einföldu frá- sagnar, er átjándu-aldar-lesendum fannst svo skemmtileg og nauðsynleg. Nú er því auðvelt að greina á milli skáld- sögu, sem er skemmtilestur í einn eða tvo tíma og annarrar er meira gildi hefur. Kvikmyndirnar eiga líka sínar „skemmtilegu" myndir, og myndir, sem eru meira. Þær hafa á að skipa lista- mönnum, sem reyna að lýsa einhverju af djúprættum sannleik lífsins, en fólk- ið hefur ekki enn náð sama þroska í kröfum sínum til mynda og skáldsagna. Það kemur oft fyrir að góðar myndir fara framhjá jafnvel þroskuðum áhorf- endum, en er síðan bjargað og kallaðar aftur fram á sjónarsviðið fyrir viður- kenningu áhugamanna. Þetta átti sér stað um mynd Orson Welles, Citizen Kane, en tækni hennar var á undan sín- um tíma og henni var því upphaflega enginn gaumur gefinn. En þar sem þroskað mat er eklci fyrir hendi á kvik- myndum og tækni þeirra, er það varla undravert, þó að áhorfendur festi ekki strax augun á mynd, sem hefur listrænt gild vegna óvenjulegrar aðferðar eða snjallrar tilraunar. Það getur verið, að mynd John Fords Þrúgur reiðinnar, hafi meiri áhrif á skynugan áhorfenda en hin marglofaða og lárviðarkrýnda mynd, Á hverfanda hveli, en ef spurt væri hvers vegna, mundi áhorfandinn líklega svara: Af því að Ford er listamaður, en stjórnandi Á hverfanda hveli sýnir aðeins góða tækni. Þetta er vafalaust rétt, en er ekki nóg. Ef lesandi Ulysses eftir James Joyce væri beðinn að bera hana saman við skáldsögu, segjum eftir Galsworthy, mundi hann ekki vera ánægður með að benda á, að Joyce væri meiri listamaður, hann mundi einnig vilja leggja áherzlu á djúpsæi Joyce, magnaða meðferð hans á máli og stíl til að draga fram ósagðar hugsanir persóna sinna, orðfegurð hans og afburða hugkvæmni. Áhorfandinn verður fyrir því sama í kvikmyndahús- inu. Ford er meiri listamaður en stjórn- andi Á liverfanda hveli, en hversvegna? Hvað veldur því? Til að geta svarað þessari spurningu, er nauðsynlegt að hafa einhverjar hugmyndir um helztu atriðin varðandi töku kvikmynda. Það er mjög algengur misskilningur að álíta, að kvikmynd geti ekki verið listaverk, (nema af einskærri tilviljun) af því að svo margir listamenn og tæknisérfræð- ingar hafa lagt sameiginlega hönd á gerð hennar. I sumum tilfellum er þetta rétt, sérstaklega um litmyndir frá Holly- wood, litmyndasérfræðingarnir þar skeyta oftast ekkert um heildarsvip myndarinnar, en leitast við að fullnægja vanabundnum kröfum um birtu og kalda, skæra liti. Af þessu verður það skiljanlegt hversvegna allar beztu mynd- irnar frá Hollywood eru svart-hvítar TlMARITIÐ VAKI 54
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Vaki

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.