Vaki - 01.09.1952, Page 108

Vaki - 01.09.1952, Page 108
vonast ég til að varpa einhverju ljósi á þær allar ef þær eiga sér nokkuð sam- eiginlegt. Leita síðan eftir einhverju svari við spurningu sem svo oft hef- ur verið spurt: Hvað er list. En til þess slík leit hafi minnsta gildi verður að reyna að greina afstöðu listarinnar til lífsins, skýra viðhorf listamannsins til sjálfs sín og heimsins utan hans og hverju þau eru háð. * * * Listin er sem einn hinna marghöfða austurlenzku guða. Hvert höfuð er markað eigin dráttum og bera þó öll svip guðsins sem á þau. Listin er marg- þætt heild, vera er talar margar tungur. En ávallt er sama samband milli hugs- unar og tjáningar talaðs orðs, hver sem tungan er. Tjáningin sjálf er breyting- um háð og á sér mörg gervi. Orðið hef- ur aðra mynd í hverju máli, en hugsa mennirnir ekki svipaðar hugsanir í hverju landi og á hverri tungu, er ekki líf þeirra háð næsta líkum skilyrðum hvar á heimi sem er? Hver listgrein á sér sína tungu, tækni sína, og túlkar hugmynd listamanns samkvæmt henni. Greinar listarinnar eru sem hliðar marg- hyrnings, maður ræður heildina fynr hliðarnar og fær þó aldrei séð nema eina í senn. Veruleikinn birtist í mörg- um myndum, hver listgrein fæst við eina. Sumir eru jafnnæmir fyrir mörg- um eða öilum, flestir fá ekki samið sig djúpt nema að einni og velja hana ým- ist til að taka við og skilja, njóta, ell- egar til að kveða list sína í mót hennar. Miðaldadómkirkja er alsett fagurlega litum gluggum er breyta á þúsund und- arlega vegu ljósinu sem berst inn um þá og valda ótal blæbrigðum. Samt er kirkjan eitt hús og eitt ljósið sem inn um glerin berst.... Til að skýra betur þetta undarlega samband greinanna við stofninn, skul- um við rannsaka nánar afstöðu hvorr- ar til annarrar þeirra listgreina sem löngum voru taldar skyldastar vegna þess þær mótuðu tjáningu sína í sama efni, orð tungunnar. Mismunurinn á ljóði og prósa liggur ekki í djúpum undirstöðum listarinnar sjálfrar, heldur í afstöðu listamannsins til tjáningarinnar. Vitundin um inntak tjáningarinnar er bundin öðru sviði mannlegrar hugsunar og skyns, tónninn er annar. Sama tónlist, sama stef verður iðulega túlkað fyrir ólík hljóðfæri og það liggur í augum uppi að hljómurinn verð- ur breyttur og áhrifin á hlustandann önnur eftir kröfu og eðli hljóðfærisins sem leikið er á. Ljóðið er bundnara persónu lista- mannsins og innri reynslu, ef til vill er innri baráttu hans greiðari framrás um ljóð en prósa og því eðlilega munur á inntaksskynjun. Hið persónulegasta, innsta og óskýranlegasta í reynslu manns og vitund, innblástur, órökbund- inn skilningur leita ljóðs til tjáningar sér; hið skýrara, ákveðnara, rökséða í reynslu hans — það er tíðast sú reynsla hans sem fremur er bundin ytri heimi: reynsla af umhverfi og aðstæðum — er auðbundnara í prósann. Á ljóði, ef það er ljóð á annað borð, er ávallt keimur pytunnar, meyprestsins er Appolló fyllir vizku sinni myrkum orðum og hún veitir fram án þess að grípa sjálf til fullnustu merking þeirra. Ljóðið er ekki í eðli sínu innstu rökhugsað, það er nær upprunalegustum dráttum mannsins en svo að hugsun þess sé bundin rökkröfum hins skynsama vitsmunalífs. Ef svo verður, tekur ljóð til sín nokkur ein- kenni prósans og verður epískt, meiri- hluti nýrri skáldskapar Islendinga er TlMARITIÐ VAKI 106
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122

x

Vaki

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.