Vaki - 01.09.1952, Side 111

Vaki - 01.09.1952, Side 111
skrautmennsku sem efldu fonnið á kostnað efnisins. Upp reis krafan um stytting á löngu og leiðu dægri, klofn- ing varð milli trúarlífs og veraldaramst- urs. Ljóðið, er átti uppruna sinn nær trúarreynslu og töfrum, tengdara tón- list en frásögn hlaut að verða fyrir skakkaföllum. En tónlistin var talin til forna snerta dýpra við sál manns og nær himnum en nokkur list önnur. Rómantíska byltingin vakti ljóðið aftur til lífs í nýjum skilningi og formi og þó skyldara því sem verið hafði í ljóði forngrikkja og mystik miðalda en upplýsingarkveðskap rationalismans er borið hafði af því banaorð. En einkum eftir tilkomu surrealismans hefur ljóð- inu aftur verið skipað til rúms, reynt að greina skáldskap eftir gildi og tjáningu, reyndar í andstöðu við prósann enda surrealisminn í eðli sínu tilraun til að lyfta hinu dularfulla, órökvísa, undir- djúpum vitundarinnar til vegs. En hann reynir vitandi vits að skapa að nýju þá einingu forms og inntaks er getið var áðan og ætla ég það honum mest gildi. Hér virðist á ferð sama bylting og gerzt hefur í málaralist á þessari öld eftir kúbismann: hún brýzt undan oki ljósmyndunar og hermiboði síðari alda í leit að upprunalegri og innilegri tján- ingu, skapar sér til þess ný og séreigin- leg form er eiga þó rót að rekja til tján- ingar löngu liðinna tíma og fjarlægra átta: það er hafin leit að hinu sameigin- lega, er orki í allri list. Alls staðar er verkið litið nýjum aug- um, hafin leit að tjáningu er sameini form og inntak, hætt við greiningu inn- taks og útlits. Menn yrkja ekki framar hending rímsins vegna. Það er ljóst að mörkin milli formanna hljóta að vera næsta óskýr víða. En svo er um alla list, engin skýr skil milli greina, allar spretta á sama meiði, koma saman í stofninum. Við fáum ekki dreg- ið takmörk milli Ijóðs og tónlistar, tón- listar og dans, danslistar og leiks, leik- listar og prósa. Á sama hátt er sam- svörun milli tónlistar og myndlistar, þær eiga saman vísindalega undirstöðu: stærðfræðina, byggingu, hrynjandina, er blæs lífi í formin. Hún er í eðh allrar listar og þar er ef til vill fólginn einn dýpstur leyndardómur hennar. List, vísindi, heimspeki eru sem þrjú straumþung vötn, sem falla undan sama bjargi, þar sem leitin var hafin í myrkri fortíð, leit eftir þekking og vizku en það er frelsi. Trúin, goðsögnin spannar alla þessa leit, sameinar eigindir lista, vísinda og hemispeki. Og eins og hvert þessara vatna á sér sam- eiginlegt með hinum eitthvað í upp- sprettu sinni, verður eitthvað sameigin- legt öllum kvíslum straumsins. Og aftur lýstur saman þeim elfum er runnið hafa sundur um óralöng ár. Eg hef greint svo ýtarlega frá bók- menntunum vegna þess að það er trú mín, að þannig sé hægt að varpa nokkru ljósi á list yfirleitt, að allar listir eigi sér sameiginlegan grunn, en munur þeirra byggist á aðferðunum og efninu sem þær nota. Ennfremur er íslenzk list- hefð að langmestu bundin bókmennta- legri sköpun, auk þess sem deilan um ljóðlistina er tímabær. Mönnum kann að virðast sem þröngt muni bilið milli listanna sem hér hefur verið farið um orðum, en því má svara til að svo sé og um ýmsar aðrar listir, til dæmis málaralist og svartlist, sem þó eru ólíkar greinar myndlistar. En aðalatriði okkar er að geta víkkað sjón- hringinn, reynt að heimfæra þær al- mennu niðurstöður, sem rannsókn okk- ar hefur leitt í ljós um listina í heild, TlMARITIÐ VAKI 109
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122

x

Vaki

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vaki
https://timarit.is/publication/818

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.