Hugur - 01.06.2008, Qupperneq 137
Að spilla æskunni
135
2) Mál sem snerta samskipti við annað fólk. Hvað felst í góðum samskiptum
og hvað í slæmum? Hvað er réttlátt og sanngjarnt í samskiptum?
3) Mál sem snerta umhverfið, bæði nánasta umhverfi sem og umhverfið í
hnattrænu samhengi. Hvernig gengur maður um nánasta umhverfi, hvern-
ig gengur maður um í skólanum, í hverfinu, heima hjá sér? Og hnattrænt:
Hvernig væri heimurinn ef allir menguðu jafn mikið og notuðu jafn mikla
orku og orkufrekustu þjóðir heims gera? Hvað geta einstaklingar gert?
Hvað ber þeim að gera?
Þegar farið er að skoða hlutina hnattrænt vakna einnig oft spurningar um réttlæti
á heimsvísu: Er rétt að vera mjög auðugur þegar vitað er að fjöldi jarðarbúa lifir
í sárri fátækt?
Hvað svo?
Hvernig fer maður að því að fá nemendur til þess að koma auga á siðferðileg álita-
mál og efla sjálfstæða siðferðilega dómgreind sína?
Hin ýmsu stef úr siðfræðikenningum eru notuð eftír því hvað ég tel best eiga
við hverju sinni og leyfi ég nemendum að velja hvað þeir telja styrkja sjónarmið
sín. Eftirfarandi stef úr siðfræðinni eru dæmi um það sem ég nota:
• Hvað ef allir...? Hvað ef allir gerðu eins og ég? Hvernig væri þá samfélagið,
skólinn, bekkurinn o.s.frv.? I þessu samhengi hef ég stundum spurt nemendur
að því hvort þeir hafi einhverntímann hnuplað úr búð eða þekki einhvern
sem sh'kt hefur gert.7 Margir viðurkenna að hafa gert það og sumir segjast
hafa „smakkað" vínber eða nammi af nammibar og það er ávallt gott dæmi til
að vinna frekar með: Ég spyr þá hversu mikið má smakka t.d. af vínberjum
í búð? ,Ja það má smakka eitt en það stendur hvergi,“ er svarað. Og ég spyr
á móti: „Hvemig litist ykkur á það að ég myndi skipuleggja gönguferð allra í
skólanum og við myndum koma við í matvöruverslun og allir myndu smakka
eitt vínber? Væri það í lagi?“ „Tja, það yrði dáh'tið skrítið," er svar flestra.
• Hvað ef maður væri í sporum einhvers annars? Hvernig vildi maður þá
hafa hlutina?
• Anægjuútreikningur. Stef frá Epíkúrusi. Veitir ákveðin breytni manni
ánægju þegar til lengri tíma er litið eða er um skyndiánægju að ræða sem
svo víkur fyrir gríðarlegri óánægju stuttu síðar?8
• Að rata meðalhófið á milli tveggja öfga. Stef frá Aristótelesi.9
• Hamingjan. Ég varpa einnig fram hugsun nytjastefnumanna um ham-
ingjuna og spyr hvort tiltekin breytni sé þess valdandi að fólk verði ham-
ingjusamt eða óhamingjusamt.10
7 Ef ég spyr spurninga sem eru persónulegar þá er það grundvallaratriði að gera nemendum það
áður ljóst að enginn þarf að svara frekar en hann vill.
8 Sbr. Lucretius, De rerurn natura (á ensku: On the Nature oflhings), þýðandi W.H.D. Rouse (Har-
vard University Press 1924).
9 Sbr. Aristóteles, Siðfræði Nikkomakkosar, þyðandi Svavar Hrafn Svavarsson (Hið íslenzka bók-
menntafélag 1995).
10 Sbr. John Stuart Mill, Nytjastefnan, þýðandi Gunnar Ragnarsson (Hið íslenska bókmenntafélag
1998).