Helgafell - 01.12.1942, Page 78

Helgafell - 01.12.1942, Page 78
356 HELGAFELL nokkurn veginn kjósendafjölda íslands). Sumar kúlurnar eru hvítar, aðrar svartar. Ef teknar eru 10.000 kúlur upp úr pokanum, þá reiknum við með því, að þetta úrtak skiptist hlutfallslega nokkurn veginn eins og heildin, stund- Um dálítið fleiri hvítar, stundum dálítið fleiri svartar. Þetta er auðséð. En við getum með því að nota stærðfræðilegar aðferðir sannað, að 95% ,,líkindi“ séu til þess, að árangrinum skeiki ekki meir en 1 % frá hinu raunverulega. Ef við nú auk þess vissum, að 25.000 kúlur væru stórar og 45.000 litlar, og 55.000 væru sléttar en 15.000 hrjúfar og flestar hvítu kúlurn- ar væru stórar, en fáar litlar, og flestar sléttar, en fáar hrjúfar, þá mundi þetta hvort tveggja verka þannig, að taka þyrfti minna úrta\ til þess að ganga úr skugga um hlutfallið milli hinna svörtu og hvítu. Leiðin er þá að skipta úrtakinu í réttum hlutföllum eftir stærð og átaki. Líkindareikning- urinn fjallar meðal annars um aðferðir til þess að ákveða, hve mikil áhrif þannig löguð samjylgni hefur á stærð þess úrtaks, er rannsaka þarf. Fyrsti vísirinn að notkun þessara aðferða til þess að kanna álit almenn- ings mun sennilega hafa verið markaðskönnun (marketing research) nokk- urra stórframleiðenda í Bandaríkjunum. Þeir létu rannsaka, hvernig almenn- ingi líkaði ný vörutegund, nýjar umbúðir o. s. frv. Þó að þetta væru tiltölu- lega hégómleg viðfangsefni, þá voru réttar og ábyggilegar upplýsingar mik- ils virði og margar aðferðir reyndar. Atkvæðaseðlar voru prentaðir í dag- blöðum eða látnir fylgja vörunni, verðlaunum var heitið, en allt bar að sama brunni, hlutfallskönnun á meira eða minna traustum líkindareiknings- legum grundvelli gaf áreiðanlegastar upplýsingar. Það urðu því sérfræðingar í markaðskönnun, sem hrundu af stað rann- sóknum þeim á hinum pólitíska vilja þjóðarinnar, er vakið hafa svo mikla eftirtekt í hinum enskumælandi heimi. Rithöfundurinn J. B. Priestley hefur sagt um þessar rannsóknir, að þær séu „mikilvæg stoð undir heilbrigðu lýð- ræðislegu stjórnarfyrirkomulagi". Þó að hér sé kannske nokkuð fast að orði kveðið, þá verður varla efazt um, að þessar kannanir gefa fróðlegar upplýs- ingar. Almenningur efaðist til að byrja með mjög um nákvæmni þessara rann- sókna', en fullyrða má, að þær hafi staðizt eldraun reynslunnar. „Institute of Public Opinion"*), sem hefur getið sér einna beztan orðstír fyrir nákvæm- ar rannsóknaraðferðir, spáði, að Roosevelt mundi verða endurkosinn 1936, þratt fyrir það, að atkvæðagreiðslur flestra stórblaða og tímarita virtust sýna, að meirihluti kjósenda væri andvígur honum. 1940 spáði stofnunin aftur að *) Þessi 8tofnun er einkaeign markaðskönnunarsérfræSingsins Gallup’s. Hann skrifar greinar um álit almennings um fjarskyldustu efni, um hvort segja eigi möndulveldunum stríð á hendur, hvaS se bezta ráS gegn kvefi(!) o. s. frv. Allt grundvallaS á hlutfallskönnunum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Helgafell

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Helgafell
https://timarit.is/publication/1076

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.