Helgafell - 01.12.1942, Síða 130
400
HELGAFELL
Merkilegar krabbameinsrannsóknir
(Ur „News Reviews".)
Algengasta tegund krabbameins hjá
körlum er krabbamein í blöðruhálskirtl-
inum, en kvenfólk fær tíðast krabbamein
í brjóstin. Um síðastliðin mánaðamót,
september — október, var frá því skýrt,
að menn væru nú komnir nokkuð á veg
að grafast fyrir um orsakir þessara tveggja
tegunda.
í Brady stofnuninni í John Hopkins
sjúkrahúsinu í Bandaríkjunum vann flokk-
ur vísindamanna, undir stjórn Richards
W. Satterthwaite, að krabbameinsrann-
sóknum og komst á rekspölinn við athug-
un á uppskurðaraðferðum, sem leitt hafa
til nokkurs bata hjá áttatíu af hverjum
hundrað körlum, er höfðu krabbamein á
háu stigi í blöðruhálskirtlinum.
Tveir læknar við Háskólann í Chicago,
þeir Paul C. Hughes og Charles B. Huggins,
komust að því árið 1941, að með því að
taka burt hluta af kynkirtlunum, mátti
stöðva vöxt krabbameins í blöðruhálsin-
um, þótt vonlaust væri áður talið um sjúk-
linginn. Aðeins tuttugu af hundraði brást
bati. Þessi nýja aðferð var notuð, þegar
krabbameinið var komið á svo hátt stig,
að við það varð ekki ráðið með því einu
að taka bara burt blöðruhálskirtilinn.
Aðgerð þessi hafði þær afleiðingar, að
nokkuð dró úr myndun hormona en það
hafði aftur í för með sér, að efnakljúfar
blöðruhálskirtilsins skiluðu minna efni en
áður. Batinn, sem hlauzt af þessum aðgerð-
um, benti til þess, að orsök krabbameins-
ins væri annað hvort óeðlilega mikil mynd-
un kynhormona eða efnakljúfa. Og þetta
virtist sannað, er krabbameinið versnaði,
ef sjúklingnum var gefið kynhormon karla.
Rannsóknir Satterthwaites læknis virð-
ast benda til þess, að minnkun frjófrum-
anna, er menn fara að reskjast, hafi í för
með sér jafnvægisskort í hormonamyndun
kynkirtlanna. Þetta verður blöðruhálskirtl-
inum óeðlileg örvun og myndast þá í hon-
um meira af efnakljúfum en ella.
Svipuðu máli gegnir um krabbamein í
brjósti.
Það kom einnig í ljós, að unnt var að
mæla aukningu efnakljúfanna í blóðinu.
Hjá fimmtíu af hundraði þeirra sjúklinga,
sem höfðu krabbamein á háu stigi og rann-
sakaðir voru, höfðu efnakljúfarnir í blóð-
inu náð ákveðnu marki.
Eignarréttur, tekjur og skattar í Sovét-Russlandi
(Styttur kafli úr bókinni „Russia fights on" eftir Maurice Hindus.)
Það er enginn kommúnismi í Rússlandi!
Þar, sem kommúnismi ræður, hverfur rík-
ið úr sögunni, því að þess er ekki lengur
þörf. En í Rússlandi ræður rikið öllu. Þar,
sem skipulagið er kommúnistiskt, taka
borgararnir laun „eftir þörfum sínum“ án
tillits til þess, hvaða verk þeir vinna né
hve mikilli orku þeir eyða í það. í Rúss-
landi er kaupið miðað við starfið og laun-
in því mishá.
En kommúnistar stjórna Rússlandi.
Eitt sinn var hámarkskaup kommúnista
250 rúblur á mánuði, en nú er þetta breytt.
Kommúnistum er nú borgað eins og öðr-
um eftir afköstum og starfi því, sem þeir
gegna. Og munurinn á tekjum manna í
Rússlandi eykst stöðugt. Peningar eru þar
jafn eftirsóknarverðir og í auðvaldsríkj-
unum vegna verðmæta þeirra, sem fyrir
þá verða keypt, og eignarétturinn er