Helgafell - 01.12.1942, Page 170
Samvinnumenn vilja samkeppni i verzlun
En samkeppnin á að tryggja lágt vöruverð
K R O N hefst handa um nýja afgreiðslutilhögun,
sem dregur úr dreifingarkostnaði.
Sjálfskipti.
Samkeppni milli verzlana er æskileg. Verzlanirnar keppa um
að gera kostnað sinn sem minnstan í hlutíalli við söluna. Það
á svo að koma neytendum til góða í lægra vöruverði. Þó fær
slík samkeppni fyrst fullt gildi, þegar hún fer fram milli
einkaverzlana annars vegar og samvinnuverzlana neytenda
hins vegar. Þá fyrst er tryggt, að sparnaðurinn renni í pyngju
neytendanna. Séu einkafyrirtæki ein um verzlunina, sýnir
reynslan, að þau freistast til að gera með sér verðsamtök.
K R O N hefur haft forustu um viðleitni í þá átt að lækka
dreifingarkostnaðinn, t. d. með því að koma á pöntunar-
fyrirkomulaginu, bæta sölubúðirnar þannig, að vinnuafl spar-
ist að nota ýmis konar á'röld, sem bæði spara vinnu og draga
úr vörurýrnun. Nú síðast hefur KRON opnað nýja búð í
tilraunaskyni, þar sem ætlazt er til, að viðskiptamennirnir
afgreiði sig að mestu leyti sjálfir. Er því ætlað að spara
talsvert mikið launagreiðslur og lækka þannig dreifingar-
kostnaðinn. Slíkar búðir eru nú orðnar algengar í Banda-
ríkjunum, þar sem samkeppni er mjög hörð.
K R O N vill nú æskja samvinnu neytenda í þessu efni,
þannig að þeir taki nýjunginni vel. Neytendum er hér með
gefinn kostur á að efla eiginn hag, með því að i sjálfskipta-
búðinni eiga þeir aldrei að þurfa að bíða afgreiðslu, og allur
sparnaður af þessum nýtízku afgreiðsluháttum rennur til
þeirra sjálfra.