Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Blaðsíða 131
BÓKAFREGNIR
121
rannsóknir, Offiski í ljósi nútíma þekkingar, Takmörknn á fiskimiðum, Orða-
skrá, Skýringar á nokkrum orðum og hugtökum, Eftirmáli þýðanda. Töflur
og línurit eru efninu til skýringar. 128 bls. Kr. 24.00 ób.
Meindýr í húsum og gróðri og varnir gegn ]>eim, eftir Geir Gígja. Handbók
og námsbók. Itarleg lýsing á byggingu og lífi skaðlegra skordýra og annarra
meindýra í húsum og gróðri, gerð grein fyrir vörnum gegn þeim og útrýmingu
þeirra og fylgir lyfjaskrá. Þá eru meindýrin flokkuð eftir því, hvar þau valda
belzt tjóni, og skrá yfir þau, bæði hin latnesku og íslenzku nöfn þeirra. Fjöldi
mynda er efninu til skýringar. 235 bls. Kr. 30.00, 38.00, 40.00.
Samkvœmisleikir og skemmtanir. Ragnar Jóhannesson, cand. mag., bjó undir
prentun. Bók þessi er hugsuð sem eins konar kennslubók í ýmsum inni- og
útileikjum, spilum, göldrum, orðaleikjum o. s. frv. og er ætluð fullorðnu fólki
og unglingum til skemmtunar. Efnið er að mestu tekið úr erlendum og ís-
lenzkum bókum og blöðum. 99 bls. Kr. 20.00 íb.
Orustan um Stalíngrad. Frásögn um einn afdrifaríkasta þátt heimsstyrjald-
arinnar, með 67 myndum. 55 bls. Kr. 20.00 ób.
Ferðabók Dujferins lávarðar, í þýðingu Ilersteins Pálssonar. Höfundurinn
ferðaðist til Islands, Jan Mayen, Svalbarða, Noregs og Danmerkur á skonnortu
sinni árið 1856. Frá því ferðalagi ritar hann móður sinni löng hréf til skemmt-
unar og fróðleiks, og er bókin safn þeirra bréfa. Nokkrar myndir eru í bók-
inni. 325 bls. Kr. 32.00 og 62.00.
Erindasafnið. Nýlega hafa komið út tvö hefti af safni þessu, 4. hefti: Ind-
versk trúarbrögð, eftir Sigurbjörn Einarsson, docent, og 5. hefti: Skoðanir
erlendra manna á íslandi fyrr og nú, eftir Pálma Hannesson, rektor. Utvarps-
erindi. Stærð: 64 bls. og 45 bls. Verð kr. 7.50 og 6.50.
Síðasti víkingurinn. Skáldsaga eftir Johan Bojer, þýdd af Steindóri Sigurðs-
syni. Bók þessi kom út á frummálinu laust eftir 1920, tekur hún til meðferðar
líf og starf norskrar alþýðu í Þrændalögum. Ekki hefur áður verið mikið þýtt
á íslenzku af verkum þessa höfundar, en útvarpshlustendur hafa nokkuð kynnzt
honum í vetur af útvarpssögu Helga Hjörvars: Kotbýlið og kornsléttan. 365
bls. Kr. 38.00 og 52.00.
A ég að segja þér sögu. Smásögur, 18 að tölu, eftir 11 höfunda: Maugham,
Undset, Davies, Carus, Saki, Maupassant, Lanvin, Wetjen, Bell, Barret og
Tzchechow. Brynjólfur Sveinsson, menntaskólakennari, hefur þýtt bókina. 299
bls. Kr. 20.00, 30.00 og 40.00.
Dagslátta drottins. Skáldsaga eftir Erskine Caldwell. Hjörtur Halldórsson
þýddi. 301 bls. Kr. 25.00 ób.
Töjrar Ajríku. Skáldsaga eftir Stuart Cloete. Jón Magnússon íslenzkaði.
414 bls. Kr. 32.00 og 42.00.
Sagan af Wassell lœkni, eftir James Ililton. Skáldsaga að einhverju leyti
hyggð á raunverulegum atburðum úr yfirstandandi styrjöld. 124 bls. Kr. 12.00
óbundin.
Vínarsagnkerjið. Kennslubók í bridge, eftir A. J. Smith. Glöggt yfirlit yfir