Tímarit Máls og menningar - 01.05.1945, Blaðsíða 14
4
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
vöruðu þjóðirnar við og sögðu: fasisminn táknar stríð. Róttækir menntamenn,
skáld og rithöfundar, gáfu út hverja viðvörun af annarri: fasisminn táknar út-
rýmingu allrar menningar, rísið gegn fasismanum. Sovétríkin reyndu ár eftir ár
að fá samvinnu við lýðræðisþjóðirnar um varnarbandalag gegn fasismanum.
En auðvaldsöflin beittu öllum ráðum til að hindra hvers konar samtök gegn
honum. Vesturveldin daufheyrðust við öllum viðvörunum. Málgögn borgara-
stéttarinnar máttu ekki heyra nefnda á nafn glæpi fasistanna. Fregnirnar af
hryðjuverkum þeirra sögðu þau fólkinu, að væru áróðurslygar kommúnista. Þau
þögðu vísvitandi yfir glæpum þeirra, rituðu í þess stað um menningarafrek
þeirra og hreint hugarfar. Þung refsing var lögð við því að fara óvirðulegum
orðum um Hitler. Þannig fékk fasisminn að þróast og dafna. Hann fékk að
hleypa heiminum í bál. Hann fékk meira að segja að eiga í stríði í nokkur ár,
áður en málgögnum þeirra auðvaldsþjóðfélaga, sem komin voru út í styrjöld
við hann, þætti það svara til hagsmuna sinna að fletta af nokkurri hreinskilni
ofan af atferli lians. En nú hefur allt í einu skipt um stefnu, síðan herir Vestur-
velda komu inn í Þýzkaland. Dagblöð og útvörp, fréttaritarar og jafnvel þing-
menn, hafa fengið málið, og nú fær loks borgarastéttin að heyra um hin ódæma
hryðjuverk, sem framin liafa verið í fangabúðum nazista, staðreyndir, sem öllum
gátu verið kunnar í tólf ár. Þessari stefnubreytingu ber sannarlega að fagna. Þó
að seint sé, er það nauðsynlegt, að heimi öllum verði kunnugt og yfir það sé ekki
hylmað, hvað raunverulega hefur átt sér stað undir stjórn fasismans. Herir Vest-
urveldanna fundu einkurn þrjár fangabúðir, Buchenwald, rétt hjá Weintar,
Belsen í Norðurþýzkalandi og Dachau í Bayern, sem lýsa upp í ægilegri mynd þá
smán, sem Ilitler hefur leitt yfir þýzku þjóðina. I hverri þessara fangabúða voru
fangar alls staðar að úr Evrópu, konur og karlar, börn og gamalmenni, þar á
meðal 10 þús. Þjóðverjar. I Belsen t. d. fundust lifandi 1500 böm. (Hvað höfðu
þau til saka unnið?) Aðkoman að þessum fangabúðum var slík, að sjónarvottar
allir taka fram, að henni verði ekki á neinn hátt með orðum lýst. Líkin lágu
í haugum inni, hvað þá úti fyrir búðunum, ódaunn var slíkur af rotnun og ó-
þrifum, að loftræsta varð, áður en menn þyldu að koma inn í þær. I Dachau stóðu
50 járnbrautarvagnar hlaðnir líkum, er Bandamenn komu að. I Buchenwald
fundu þeir 21 þúsund fanga á lífi, 18 þúsundir höfðu dáið úr hungri og pynd-
ingum frá því í janúar s.L, en talið er, að 80 þúsundir hafi alls gist þetta víti.
Þúsundir þeirra, sem bjargað var, eiga þó enga lífsvon. 1 Belsen voru 30 þús-
undir á lífi, úr 35 þúsundum var búið að kvelja lífið. Af 1700 norskum Gyðing-
um, sem fluttir voru þangað eftir fyrstu handtökurnar í Noregi, lifði aðeins einn.
Yfirleitt þoldu menn meðferðina á þessum stöðum aðeins takmarkaðan tíma.
Þeir, sem fyrstir höfðu komið í fangabúðirnar, voru flestallir dauðir. 1 Buchen-
wald var blóminn af menntastétt Evrópu, heimsfrægir vísindamenn, rithöfundar,
læknar, forystumenn á sviði stjórnmála og félagsmála, allir, sem skarað höfðu
fram úr að hugdirfsku, gáfum, sannleiksást og réttlætiskennd, rnenn, sem neit-
uðu að ganga á hönd ofbeldinu og lýginni og lögðu lífið að veði fyrir sannfær-
ingu sína. í fangabúðunum þoldu allir, er þar komu, hina kvalafyllstu tilveru,