Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Síða 15

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Síða 15
Undirbúningur margra stríða skjali sem bandarískir stjómmálamenn hafa fyrir löngu numið úr gildi. Þau hafa hlotið staðfestingu í byltingarsögu síðustu hálfrar aldar. Raunverulegar þjóðfélagsbyltingar hefjast þá aðeins þegar allar aðrar leiðir hafa reynzt vera ófærar, þegar kúgun harð- stjómar eða óstjómar er orðin bókstaflega óbærileg. Engin fjarstýring getur komið þeim af stað, og ekki heldur óskir hugsjónamanna, heldur nauðsynin í vægðarlausustu merk- ingu orðsins. Nokkrar þjóðir í Asíu og fleiri í Suður-Ameríku búa nú þegar við þessa hörðu nauðsyn. Þar á reynsla morðsérfræðinganna í Víetnam að koma að notum, og fyrsti þáttur er þegar hafinn í Dómíníska lýðveldinu. En þar reyna Bandaríkjamenn um leið að beita hinum óbeinu bardagaaðferðum í klassískasta stíl: þeir byrja á að endur- lífga harðstjórn sem þegar hefur verið rekin frá völdum, til þess að hún geti síðar orðið aðili (ef ekki tekst betur til), með jöfnum rétti, í nafni „lýðræðisins", að samningum um framtíðarstjómskipun; — meðan þetta er ritað reyna Bandaríkjamenn af fremsta megni að koma á fót suður-amerísku „friðargæzluliði“ sem er ætlað það hlutverk að Ijá morðverkum þeirra í Santo-Domingo löggildingu eftirá; það er dálítið óhönduleg fram- kvæmd á því bandaríska skylduboði samvizkunnar að láta aðra berjast fyrir sig; Trujillo gegndi meðal annarra því hlutverki í Guatemala 1954. Og öllu þessu er hleypt af stað vegna þess að bandarísk fyrirtæki eiga helminginn af sykurverksmiðjum og þrjá fjórðu af sykurekrum þessa lands. Það er rétt að endurtaka að stefna Bandaríkjastjómar hefur í sjálfri sér ekki breytzt. En valdamenn Bandaríkjanna hika ekki lengur við að leggja opinskátt sök stríðsglæp- anna á herðar hinnar bandarísku þjóðar til að koma fram stefnu sinni. Það má kannski orða þetta öðruvísi, eins og algengt er: að ofbeldismennimir sem einskis svífast hafi nú náð undirtökunum í bandarískum stjómmálum. Breytingin er einnig fólgin í því að of- metnaður bandarískra forustumanna kann sér nú ekkert hóf, og virðist vera að gera þá ærða. Því að það er ljóst að á þeim leiðum sem Bandaríkin fara núna bíÖur þeirra ekki annaÖ en smánarlegur ósigur um það er lýkur, nema þá að þeir taki það ráð að útrýma heilum þjóðum og leggja lönd þeirra gjörsamlega í eyði. En vandséð er að veldi Banda- ríkjanna gæti staðizt slfkan sigur. Ofmetnaður er hættulegur þjóðarsjúkdómur og áhættusamt verk að lægja slíkan of- metnað. En það er nauÖsynlegt. Það er nauðsynlegt og æskilegt að hið bandaríska ofbeldi brenni á sér finguma í Víetnam, þó að það eitt muni að vísu varla nægja. Enginn þarf að gera því skóna að þjóð sem hefur verið vanin á þá trú um sinn að henni beri að ráða yfir heiminum, læknist af þeim sjúkdómi þjáningalaust. Frakkar háðu nýlendustríð f nær tuttugu ár samfleytt vegna þess að þeir vildu ekki horfast í augu við þann sannleik að heimsveldisstaða þeirra væri liðin tíð. Engin ástæða er til að ætla fyrirfram, að „ný- lendustríð" Bandaríkjamanna muni taka skemmri tíma, en mikil líkindi til að þau verði mun langvinnari. Eftir að hafa barizt tíu ár í Víetnam áttu leifar franska hersins ekki annan kost en hypja sig. En það nægði ekki til. Enn var barizt sjö ár í Alsír, árangurs- lausri baráttu. Þá loksins fékk skynsemin að ráða. Þessi ófögru frönsku nýlendustríð kostuðu fjórða franska lýðveldið, sem hafði fengið björtustu vonir þjóðarinnar í vöggu- gjöf, lífið, og munaði hársbreidd að þau kæmu Frakklandi í greipar nýfasista. En lexían sem hinar tvær hetjuþjóðir nútímans, önnur í Asíu og hin í Afríku, gáfu franskri yfir- gangsstefnu, var ekki til ónýtis; síðan hafa samskipti Frakka við „þriðja heiminn“ verið nokkurnveginn snurðulaus, og á þessum síðustu og verstu tímum er Frakkland eina ríki 5
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.