Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Side 16

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Side 16
Tímarit Máls og menningar Vestur-Evrópu sem þarf ekki að blyg'ðast sín vegna stuðnings við ofbeldismennina í Washington. Það þarf kannski mörg ár til að Bandaríkjamenn læri þá lexíu sem Frakkar virðast nú hafa lært, og kannski læra þeir hana ekki fyrr en um seinan, eða ekki fyrr en það stjómar- form sem nú er við lýði í Bandaríkjunum verður orðið óbærilegt, og bandaríska þjóðin tekur Sjálfstæðisyfirlýsinguna aftur í gildi. Hvað sem því líður, og enda þótt Víetnam- stríðið sé sennilega aðeins undirbúningur margra bandarískra styrjalda, þá slá nú ekki aðeins hjörtu allra róttækra manna heldur æ fleiri frjálslyndra manna um allan heim með hinum „hemaðarlega veiku“ skæruliðum í Víetnam sem heyja ójafnan leik við sterkasta herveldi heimsins. Óhrekjandi vottur um hinn mikla „pólitiska styrk“ sem bandarískri herfræði gengur svo illa að læra að sigrast á, er hin sívaxandi mótmæla- hreyfing í Bandaríkjunum sjálfum, sterkasta andstaða gegn heimsveldisstefnu Banda- ríkjanna sem hingað til hefur risið í því landi. Þessi andstaða er vissulega mikið fagn- aðarefni, þó enn sé engu hægt að spá um það hve vel hún muni duga. Hún minnir oss á þá aldagömlu lýðræðislegu erfð sem einusinni var framlag Bandaríkjanna til heims- menningarinnar og einhvemveginn á enn lifandi rætur þrátt fyrir það að hún hefur verið margdrepin og grafin og gerð að lygatuggu og auglýsingaskilti heimsræningjanna, þeirra sem „einir allra gimast auð og örbirgð af jafn-mikilli ákefð; stela, myrða, ræna og kalla það forræði, leggja lönd í eyði og kalla það frið“, eins og mælt var fyrir nærri nítján öldum um heimsræningja þess tíma. — Skemmtilegra væri að lifa á Islandi ef það al- menningsálit sem ætla má að meirihluti íslenzks blaðakosts sé fulltrúi fyrir, treysti sér til að styðja þessa Bandaríkjamenn sem vissulega eru túlkar „hins bezta í bandarískri menningu", — í stað þess að stinga sér í músarholur þagnarinnar og auglýsa „hlutleysi" sitt með fréttagreinum úr Time og Newsweek, eða, þegar hreystin er mest, með hníf- jafnri skiptingu milli sjónarmiða Alsops og Lippmanns. S.D. Þóroddur Guðmundsson hefur þýtt kvæðið eftir Ivar Orgland sem birtist í þessu hefti. Nafn hans féll niður fyrir misgáning. 6
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.