Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Síða 23

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Síða 23
íslenzk vísindastarjsemi steinn einnig komið á fót umfangsmiklum norðurljósarannsóknum með at- hugunum víðsvegar um landið. Nýlega höfum við líka tekið í notkun tæki til j ónosferurannsókna sem við rekum í samvinnu við ameríska aðila. Undanfarið hefur nokkuð verið unnið að rannsóknum varðandi Surtseyjar- gosið. Er þar um að ræða hitamælingar, segulmælingar og ísótópamælingar. Er hœgt að halda uppi rannsóknum hér á landi sambœrilegum við það sem gert er erlendis? Er nógu frjór jarðvegur, nægilega víðtœk vísindaleg starf- semi og nógu margir vísindamenn í svipuðum greinum til þess að rannsóknir geti borið árangur? Þessum spurningum svara ég hiklaust játandi, enda hafa ýmis ágæt vísinda- störf verið unnin hér á landi. Vitanlega verður slík starfsemi aldrei eins víð- tæk hér eins og í fjölmennum löndum, en íslenzkir vísindamenn geta náð góðum árangri, ef þeir beita sér að ákveðnum afmörkuðum viðfangsefnum, ekki sízt ef það eru verkefni sem valin eru í samræmi við aðstæður. Einangr- un á ekki að þurfa að standa vísindastarfsemi hér fyrir þrifum. Hvaða skilyrði þurfa að vera til þess að vísindastarfsemi geti blómgazt hér, og í hverju er þeim mest áfátt? Fyrsta skilyrðið er náttúrlega að hafa á að skipa færum mönnum sem hafa áhuga á starfi sínu og vilja eitthvað á sig leggja. Æskilegt er að um sé að ræða einhvern hóp manna með svipuð áhugamál, enda þótt sumir vísinda- menn kjósi að vinna einir. Vissum ytri skilyrðum þarf að vera fullnægt. Starfsmenn vísindastofnana þurfa að geta gengið að starfi sínu óskiptir og helgað því alla krafta sína. A þessum vettvangi er oft lítið sem skilur á milli mistaka og árangurs og mikið undir því komið að athyglin sé stöðugt vakandi. Einnig verður að sjá vísindamönnum fyrir viðunandi vinnuaðstöðu, bæði hvað snertir tækjakost og aðstoð við tímafrek rútínustörf. Tækjaþörfinni má þó stilla nokkuð í hóf með skynsamlegu verkefnavali. Það sem einkum skortir á hér á landi er almennur skilningur á því að vís- indaleg starfsemi er ekki tómstundagaman, heldur verður að tryggja vísinda- manninum nægan tíma og næði við störf sín. M. a. verður hann að vera það vel launaður að hann þurfi ekki að eyða verulegum hluta orku sinnar í auka- störf til að sjá fjölskyldu sinni farborða. 13
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.