Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 36
Tímarit Máls og menningar
væri skrifuÖ til að dást að „kross-
ferð“ Frankós, bara af því að eitt-
hvert misræmi þótti í aðdáuninni.
Námsstyrkir og kennaraembætti,
verðlaun og önnur heiðursmerki
voru veitt, samkvæmt lögmáli spill-
ingarinnar, af handahófi eða til að
kaupa stjórninni áhangendur meðal
lista og vísindamanna. Af þessu
leiddi að eftir nokkur ár voru það
aðeins heimskingjar eða gutlarar sem
Frankó gat stært sig af að hafa sín
megin. Sannir menntamenn, sem upp-
haflega höfðu fylgt honum að mál-
um, sáu fljótt hverskonar „vísindi“
þeim var ætlað að boða. Ef þeir áttu
að halda sjálfsvirðingu sinni urðu
þeir að rísa gegn þessari andlegu
kúgun og þá var ekki í annað hús að
venda en samlagast sínum fyrri and-
stæðingum frá 1936. Hinir sem ekki
hafa enn yfirgefið Frankó lifa í til-
veru sem skiptist milli ruddaskapar
og örvinglunar.
Opus Dei
Afturhaldshugsj ónir f alangista hafa
fengið slíkt áfall að þær munu ekki
rétta við aftur, þrátt fyrir tilraunir
Calvos Serers, Marreros og fleiri hug-
sjónafræðinga Opus Dei. Opus Dei
er kirkjulega sinnaður félagsskapur,
sem í senn er fylgjandi hægri armi
andspyrnuhreyfingarinnar gegn
Frankó og hefur samvinnu við ríkis-
stjórnina, og gerir sér von um að
taka við af henni á sínum tíma. Árum
saman hefur þessi félagsskapur reynt
að endurnýja spænskar erfikenning-
ar sem eru, eins og vænta má, and-
byltingarsinnaðar. Opus Dei telur sig
frjálsan félagsskap sem afneiti fal-
angistum og fasisma, en erfitt er að
skilja tilgang stefnu hans. Hið eina
sem er greinilegt, er græðgi þeirra í
að ná sér í lykilsaðstöðu í spænsku
þjóðfélagi: ráðherraembætti, kenn-
arastóla og umboðsstjórn ríkisins.
Samkvæmt yfirlýsingum Opus Dei er
ásetningur þeirra að koma á „tækni-
legum og regluhundnum“ framför-
um. Fulltrúar þeirra kalla sig „tækni-
fræðinga“, „vísindamenn“, „rök-
fræðinga“, „nytsemisheimspekinga”
og þeir nota hlutlaus og tvíræð hug-
tök í áróðri sínum. Þeir tala ekki um
stéttabaráttu, heldur „árekstur milli
hópa þjóðfélagsþegna“, þeir nefna
ekki áróður, heldur „upplýsinga-
tækni“, ekki endurbætur á landhún-
aði, heldur „breytingar á upphygg-
ingu“ Þeir tala um „tæknistarf“ og
meina afturhaldssama hugsjónafræði.
Þrátt fyrir þetta orðagjálfur dylst
engum spánverja að Opus Dei er
fulltrúi allra afturhaldsafla nútíma
Spánar. Þeim tekst ekki að dylja
stuðning sinn við stórbændur og stór-
kapítalista eða þátttöku sína í morði
Grimaus, ekki frekar en samþykki sitt
á pólitískum fangelsum og ritskoðun.
Strax og komið er nálægt Opus Dei
leggur fyrir daun af afturhaldinu sem
þessi „endurnýjun“ á að dylja. Þetta
26