Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Side 40

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Side 40
Tímarit Máls og menningar að senda á veltvang stórskotalið gegn ljóðum skáldsins eru ýmsar aðferðir hafðar uppi til að einangra verkalýð- inn frá byltingarsinnuðum áhrifum. Gjörræðislegar lagabeitingar Frankó- sinna bj óða upp á mörg tiltök í þeim efnum. Þannig er til að mynda menntamönnum, sem handteknir eru, veitt ýms sérréttindi, þeim er ekki skilyrðislaust misþyrmt, mál þeirra eru lögð undir úrskurð borgaralegra dómstóla, þeim er ekki stefnt fyrir herrétt, eins og verkamönnunum, verði þeir sekir fundnir hljóða dóm- arnir upp á 1—3 ár, ekki 12, 15 og 20, eins og dómar yfir verkamönnum sem dæmdir eru fyrir sömu „sakir“. Stúdentar eru venjulega dæmdir í fjársektir og missi akademískra rétt- inda, fangelsin eru fyrst og fremst handa öreigum og verkfallsmönnum. Aftaka Julián Grimaus er ekki í neinni mótsögn við þessar ráðstafan- ir dómstólanna, öllu fremur rökrétt afleiðing. Þessar tilslakanir í dómum eru nefnilega aðeins veittar yngstu fulltrúum menntamanna, stúdentum, sonum háttsettra manna í liði Fankós, yfirleitt andstæðingum sem fasistar hafa von um að hverfi aftur í þeirra skaut. Sé menntamaður hinsvegar „alveg fortapaður“, standi óhaggan- legur með verkalýðnum og eigin framliði, gerir kúgunarvélin engan mismun á þeim og verkamönnum. Um það vitna dómar yfir kommún- ískum menntamönnum, svo sem blaðamanninum Pericás, listmálaran- um Ibarrola ofl. ofl. Þessar herneskjulegu hegningar- ráðstafanir eru studdar sálfræðileg- um aðgerðum Fragas Iribarnes og meðstarfsmanna hans. Hér er ekki auðið að gera neina viðhlítandi grein fyrir þessum aðferðum, þær eru ekki fyrst og fremst hryðjuverk og ógnar- stjórn, markmið þeirra er að venja maga Frankóismans við að melta andlega andspyrnu og breyta bylt- ingarsinnaðri alvöru hennar í óskað- legt næringarefni. Fraga er leikinn í þeirri list, sem hann beitti þegar hann var forstjóri „pólitískrar námsstofn- unar spænskrar menningar“. Aðferð- in hefst á mútum, heldur áfram með gildrum og klækjum, rógi og hótun- um og endar venjulega í ofbeldisverk- um. „Frjálslyndisstefna“ Fragas Fraga og nánustu samstarfsmenn hans sýna mikla tvöfeldni í ráðherra- embættum sínum. Opinberlega fylgja þeir stefnu Frankós, en eru nógu háls- liðamjúkir til að þykjast vera „frjáls- lyndir“ í samskiptum sínum við menntamenn, hvetja þá til að bera fram kröfur sínar, láta á sér skilja að þeir séu þeim hlynntir og mótsnúnir hinum „hörðu“ (los duros) í ríkis- stjórninni, bjóðast til að fá úr gildi numda ritskoðunina og heita þeim fj árhagslegum og tæknilegum hags- munum. í staðinn eiga menntamenn- 30
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.