Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 51

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 51
Ilin útvalda komust að þeirri niðurstöðu, að kúlan væri geislavirk, auk þess sem hún sendi útvarpsbylgj ur frá sér með áður óþekktri tíðni, sem þeim heppnaðist að mæla með aðstoð vísindamanna gegnum opið símasamband við Jodrell Bank. Þannig hófst nýja sköpunarsagan, eins og hún stendur skráð í skýrslum. Katrín vaknaði óróleg af deyfilyfjamóki. Um kvöldið hresstist hún og varð nægilega andlega styrk til að þola nærveru Sveins, sem flutti henni fréttirnar. Hamingjusöm ertu, væna mín, sem fyrst kvenna ólst geimfar. Katrín skildi ekki orð hans, hún heimtaði að barnið yrði lagt á brjóst, en var meinað að snerta við henni óvarin. Hún var þá klædd asbestsamfestingi, og ljósmóðirin rétti henni kúluna með glertöng, en Sveinn og börnin röðuðu eldhússtólunum kringum rúmið, stóðu uppi á þeim og skoðuðu móður og barn gegnum grænar vínflöskur, sem þau héldu fyrir andlitinu til varnar augunum. Klukkan tvö um nóttina, þessa andvökunótt í lífi þjóðarinnar, rann geislavirknin af kúlunni. Hún varð viðráðanleg og ljósmóðirin tók hana með glertönginni og lagði í tómt sultuglas, sem hún lokaði með glæru bréfi og teygju. Næsta morgun bárust hvaðanæva tilboð vísindastofnana í kúluna. Erlend stórblöð sendu fréttaritara á vettvang. Jodrell Bank og Stj örnuathugunar- stöðin á Palomar-fj alli sendu heillaóskaskeyti. Ríkisstj órnin reyndi að gera kúluna að þjóðareign. En Katrín hélt fast við sitt. Kúlan er hold af mínu holdi, blóð af mínu blóði, sagði hún. Móðir hvorki selur nér afhendir öðrum afkvæmi sitt. En þegar við deyjum, þá getið þið bæði krufið mig og hana, þegar hlutverki okkar hér er lokið. Hún kallaði börn sín að rúmstokknum og sýndi þeim sofandi kúluna. Má nú koma við hana með fingrunum? spurðu börnin. Kúlan mókti og horfði á börnin hálf-opnu, grænu útvarpsauga. Það má aldrei snerta nýfædd börn, svaraði Katrín. Hún dottar, hún systir ykkar. Jafnskjótt og kúlan heyrði þessi viðurkenningarorð glaðvaknaði hún og sendi ærandi útvarpstruflanir um svefnherbergið, hoppaði á gaddafáhnurum og lét öllum illum látum á krukkubotninum. Er hún svona kát? Hún ýmist orgar eða er gleið eins og þið. Á þriðja degi barst henni nýr Silver Kross barnavagn sem gjöf frá Alþingi. í vagninum óku börnin henni úti á malargötum þorpsins. Aðrir krakkar öf- unduðu þau af kúlunni, sem hoppaði fjarstýrð á koddanum og tók lífsorku frá sólinni. Og þau voru svo blíð og umhyggjusöm að unun var á að horfa. 41
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.