Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Blaðsíða 56
Tímarit Máls og menningar
sem þú drukknar eins og hinir. Hvernig á ég að komast af með þessar
stelpur, og ég gömul kona á grafarbarmi?
(Bartley leggur jrá sér múlinn, fer úr gamla jakkanum og í
annan nýrri úr sama efnij.
bartley (við Noru): Er hann að leggja að bakkanum?
NORA (horfir út): Hann er að fara fyrir græna höfðann og fellir seglin.
bartley (tckur pyngju sína og tóbak): Ég hef hálftíma til að komast oneftir,
og ég kem aftur eftir tvo daga, eða þrjá daga, eða kannski fjóra ef það
verða mikil hvassviðri.
maurya (snýr að eldinum og lœtur sjalið yfir höfuð sér): Er það ekki
harður og vondur maður að vilja ekki heyra, hvað gömul kona er að segja,
og hún að telja hann af að fara á sjóinn?
catlheen: Það er líf ungra manna að fara á sjóinn, og hver mundi leggja
eyru við því sem gömul kona er að nauða?
bartley (tekur múlinn): Nú verð ég að skunda. Ég ríð oneftir á rauðu
hryssunni, og gráa trippið fylgir mér eftir. Blessun guðs sé með ykkur.
(Hann fer út).
maurya (hátt, um leið og hann jer): Nú er hann farinn, guð miskunni okk-
ur, og við sjáum hann ekki framar. Hann er farinn, og þegar myrkrið
svarta fellur yfir, á ég engan son eftir í heiminum.
cathleen: Hversvegna vildirðu ekki gefa honum blessun þína, hann sem
leit við í dyrunum? Er ekki nógur harmur yfir öllum í þessu húsi, þó þú
látir hann ekki fara með váleg orð á baki og hörð orð í hlustum sínum?
(Maurya tekur upp skörung og fer að skara í eldinn af handa-
hófi, án þess að horfa um kring).
NORA (víkur að henni): Þú skarar mónum frá brauðinu.
cathleen (hátt): Jesús Kristur hjálpi okkur, Nora, við vorum að gleyma
brauðinu hans!
(Hún gengur að hlóðunum).
NORA: Hann verður örmagna að vera á ferð fram í rauðamyrkur og ekki
borðað neitt síðan í bítið í morgun.
cathleen (tekur brauðið úr hlóðunum): Hann verður örmagna, svo sann-
arlega. Það getur ekki verið glóra í neinum í húsi, þar sem gömul kona
rausar þindarlaust.
(Maurya rœr á stólnum).
CATHLEEN (sker bita af brauðinu og vefur rýju utan um hann; við Mauryu):
Þú ferð með þetta niður að brunninum og færð honum það um leið og
46