Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Blaðsíða 60

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Blaðsíða 60
Tímarit Máls og menningar því lík hans hefur fundizt langt í norðri, og hann hefur fengið heiðarlega greftrun fyrir náð guðs. MAURYA (viss í sinni sök): Ég er nýbúin að sjá hann, einmitt í dag, ríðandi á harðastökki. Bartley kom á undan á rauðu hryssunni; og ég reyndi að segja „guð veri með þér“, en það var eitthvað sem kæfði orðin í hálsinum á mér. Hann fór hratt framhjá; og „guð blessi þig“, segir hann, og ég kom ekki upp orði. Svo leit ég upp, með grátstafinn í kverkunum, og sá hvar gráa trippið kom, og Michael sat á baki þess — í fallegum fötum, og með nýja skó á fótunum. CATHLEEN (tekur að gefa frá sér harmahljóð): Við erum búnar að vera frá þessum degi. Við erum svo sannarlega búnar að vera. nora: Sagði ekki ungi presturinn, að guð almáttugur færi ekki að láta hana standa uppi eina og sonarlausa? maurya (lágt, en skýrt): Hann og hans líkar bera lítið skynbragð á sjóinn ... Það er úti um Bartley, og kallið þið nú á Eamon að smíða mér góða kistu úr hvítu borðunum, því ég vil ekki lifa eftir þá. Maðurinn minn, og faðir hans, og sex synir, ég hef haft þá alla hér í húsinu — sex væna drengi, þó ég kæmi hart niður að þeim öllum þegar ég fæddi þá i heiminn — og sumir þeirra fundust, og sumir fundust ekki, en nú eru þeir farnir allir saman .. . Það voru Stephen og Shawn, sem fórust í storminum mikla, og fundust seinna í Flóa Gregorys gullinmynnta, og voru bornir tveir saman á einum planka inn um þessar dyr. (Hún þagnar andartak, en slúlkurnar hrökkva við eins og þœr liafi heyrt eitthvað gegnum dyrnar, sem standa í hálfa gátt að baki þeim). nora (hvíslandi): Heyrðirðu þetta, Cathleen? Heyrðirðu ekki einhvern há- vaða hérna norðausturundan? cathi.een (hvíslandi): Það var einhver að hrópa útvið ströndina. maurya (heyrir ekkert, heldur áfram): Það voru Sheamus og faðir hans, og líka hans faðir, sem týndust á dimmri nóttu, og af þeim sást ekki tangur né tötur þegar sólin reis. Það var Patch, sem drukknaði þegar skelinni hvolfdi undir honum. Ég sat hér með Bartley, og hann hvítvoðungur í keltu minni, og ég sá tvær konur, og þrjár konur, og fjórar konur koma inn, og þær signdu sig og sögðu ekki eitt einasta orð. Þá leit ég út, og það voru karlmenn á eftir þeim, og þeir héldu á einhverju í hálfu, rauðu 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.