Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Side 75

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Side 75
UndrabarniS ráðstafað á æðri stöðuin. Guð úthlutar gjöfum sínum að eigin geðþótta, við megum okkar einskis, og það er engin skömm að því að vera venjulegur maður. Þessu er svipað farið og um Jesúbarnið. Enginn þarf að blygðast sín fyrir að lúta því. En hve það er einkennilega notalegt að hugsa til þess arna!“ — Hann áræðir ekki að hugsa: En hve það er sætt! — Það væri hneykslan- legt, ef gamall klunnalegur karl notaði orðið „sætt“. En honum finnst það nú einmitt sætt! Það er það sem honum finnst! „List ...“ hugsar kaupsýslumaður með páfagauksnef. „Já, svona smávegis gling-gling-gló og hvítt silki er auðvitað til unaðsbótar í tilverunni. Þar að auki fer hann ekki illa út úr þessu. Rösk fimmtíu sæti á tólf mörk — það eitt eru samtals sex hundruð mörk, og við það bætist allt hitt. Frá því dregst svo leigan á salnum, lýsing og efnisskrá — en samt verða að minnsta kosti efíir þúsund mörk nettó. Ekki má gleyma því.“ „Jæja, hann stælir nú Chopin eftir beztu getu!“ hugsar píanókennarinn, nefhvöss kona, komin á þann aldur, að skynsemi hennar er tekin að skerp- ast og vonirnir fá hægt andlát. „Það er óhætt að segja að hann sé ekki sér- lega frjór. A eftir ætla ég að láta skoðun mína í ljós með þessum orðum: „Hann er nú ekki mjög frjór“. Það lætur vel í eyrum. Auk þess er hand- stillingin algerlega óskóluð. Það á að vera hægt að leggja smámynt ofan á handarbakið . .. Ég skyldi láta hann kenna á reglustikunni.“ Og þarna situr stúlka sem lítur út eins og vaxmynd. Hún er enn á æsku- skeiði og stendur þessvegna í stríði við tilfinningar sínar og henni hættir til að velta fyrir sér feimnismálum. Nú laumast hún til að hugsa: „Hvað í ósköpunum er þetla! Hvað er þetta sem hann er að leika! Það er ástríðu- þungi í leik hans, það er auðheyrt! En hann er aðeins barn, eða hvað?! Ef hann kyssti mig, væri það rétt eins og litli hróðir minn væri að kyssa mig, — það væri enginn koss. Eru þá til óbeizlaðar ástríður, ástríður, sem eru sjálfstætt afl, sem beinist að engu því sem jarðneskt er, og opinberast í innfjálgum barnaleik? ... Jæja, ef ég segði þetta upphátt, yrði mér skipað að taka lýsi. Það væri eftir öðru í þessum heimi.“ Upp við eina súluna stendur liðsforingi. Hann virðir fyrir sér sigursælt undrabarnið og hugsar með sér: „Þú ert einhvers virði og það er ég líka. Við erum það báðir, hvor á sinn hátt!“ Svo lætur liann sér nægja að slá saman hælunum og votta undrabarninu þá virðingu sem hann ber fyrir öll- um ríkjandi máttarvöldum. En þarna situr líka gagnrýnandi í boðssæti sínu. Hann er maður roskinn, klæddur snjáðum svörtum jakka og kryppluðum slettóttum buxum, og hann 5 TMM 65
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.