Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 85

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 85
íraland — ísland? þangað írá Skíringssal, var Danmörk á bakborða (þ. e. a. s. Skánn eða suðurhluti Svíþjóðar, sem löngum var hluti Danmerkur), en á stjórn- borða var opið haf í þrjá daga, og í tvo daga, áður hann kæmist til Heiða- bæjar, var Gotland og Sillende og margar eyjar á stjórnborða. í lönd- um þessum bjuggu Englar áður en þeir komu til þessa lands. í þessa tvo daga hafði hann á bakborða eyjarn- ar, sem liggja undir Danmörku.“ Óttar kveðst búa nyrzt allra Norð- manna, og eftir siglingu hans norður fyrir Noreg er talið, að heimkynni hans hafi verið á Hálogalandi, ekki öllu sunnar en við Vesturfjörðinn austur af Lofoten. Öll frásögn hans er mj ög skýr og traust nema um átta- táknanir. Þar fylgir hann málvenju bænda, miðar við landslag, höfuð- drætti þess eins og siður er enn í dag. Hann siglir norðaustur um Finnmörk og fyrir Norður-Horn, Nord Kap, fyrstur manna, sem sögur greina. Hann er fyrsti landkönnuðurinn, sem siglir um íshafið og Hvítahafið eða Gandvík. Hann er gætinn í staðhæf- ingum, og vill ekki hlaupa með sög- ur Bjarma af löndum þeirra, af því að hann hafði ekki séð þau sjálfur. Hann fullyrðir ekki neitt um það, hvort hafið norður af Noregi, íshaf- ið, er heldur úthaf eða flói, af því að hann hafði ekki rannsakað það, og jafnstaðhæfingalaus er hann um Gandvík. Hann talar um Terfinna og Bjarma eins og þær þjóðir hafi verið honum áður kunnar. Þegar Óttar kemur að landi Bjarma, veit hann, að það er ekki öruggt að halda lengra. Þá lætur hann staðar numið. Ýmsir fræðimenn telja, að Óttar muni ekki vera fyrsti norræni mað- urinn, sem leggur leið sína norður um Finnmörk, og styðja þá skoðun sína einkum fornum norrænum ör- nefnum þar norður frá. Þær bolla- leggingar getum við látið liggja á milli hluta. Þær breyta ekki þeirri staðreynd, að Óttar er fyrsti maður- inn, sem kannar lönd þessi og gefur um þau skýrslu, sem kemst inn í land- fræðibækur. Þórólfur Kveldúlfsson var samtíðarmaður Óttars, en Þórólf- ur hafði um skeið skattheimtu fyrir Harald konung norður á Finnmörk og átti þar skipti við ýmsa þjóð- flokka: Kveni, Kylfinga og Kirjála, eins og segir í Egils sögu. Norðan af Finnmörku barst mikil og góð grá- vara og tannvara, rostungs- og ná- hvalstennur. Norskir höfðingjar sótt- ust mjög eftir þessum auðæfum, eins og íslenzkar fornsögur greina. Óttar kvaðst hafa lagt í leiðangur sinn til þess að kanna landið, en þó einkum til þess að afla rostungstanna og svarðreipa. Þórólfur var ekki sá fyrsti, sem hafði þá sýslu með hönd- um að heimta Finnskatt, en hann og aðrir, sem fóru í leiðangra um norð- urhéruð Skandinavíu, fóru landleiðis og ferðuðust þar yfirleitt á vetrum. 75
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.