Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 104

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 104
Tímarit Máls og mcnningar kvæða og leikja. Auk þess var nauðsynlegt að greina á milli þess sem skrifað var upp eftir gömlu fólki á 19. öld og haft getur heimildargildi og hins sem aðeins má meta sem ályktanir fræðimanna er um leikina fjölluðu á þeim tíma. Þetta hefur verið reynt í inngangi ...“ (bls. ccxlii). Því nær helmingur ritgerðarinnar (ix.— cxvii. bls.) er leit að heimildum þeim sem Olafur Davíðsson hefur stuðzt við þegar hann samdi ritgerð sína um íslenzka dans- leiki sem prentuð var íraman við kvæðasafn hans Islenzkir vikivakar og vikivakakvæði árið 1894 (3. bindi í safni hans og Jóns Árnasonar Islenzkar gátur, skemtanir, viki- vakar og þulur, en 4. bindið — einnig í umsjá Ólafs Davíðssonar — Islenzkar þul- ur og þjóðkvœði kom út 1898—1903). J. S. hefur fundið allt sem hann leitaði að og meira en hann hefði raunar getað vænzt í upphafi. Flestallt var vel geymt á sínum stað í handritasöfnum, en talsverður partur virtist glataður. Jóni Samsonarsyni segist svo frá: „Uppskriftir sem sendar voru Fornfræðafélaginu li Kaupmanna- höfn] og heimildasafn Jóns Sigurðssonar hefur varðveitzt í handritasöfnum. Hins vegar hefur safn Jóns Árnasonar sem fór á milli hans og Ólafs [Davíðssonar] og Pálma [Pálssonar] ekki komizt í handrita- safn, og um hríð virtust líkur á, að það væri glatað. Það reyndist þó sem betur fer rangL Sumarið 1963 gerði Páll Pálmason fyrrverandi ráðuneytisstjóri mér þann greiða að huga að þessurn blöðum Jóns meðal bóka og handrita sem liann hefur erft eftir föður sinn Pálma Pálsson, og þá kom í ljós dálítið safn þjóðfræðauppskrifta og þar á meðal böggull sem í eru gögn er varða útgáfu Ólafs, fslenzka vikivaka og vikivakakvæði. í bögglinum var meðal ann- ars allt það sem Jón Árnason hafði látið af höndum til útgáfunnar. Þetta hefur kom- izt í eigu Pálma, eftir að útgáfu Ólafs var lokið.“ Pálmi Pálsson hafði í öndverðu ætl- að að annast bindið með dansleikjunum, en svo fór að Ólafur Davíðsson tók við því verki af honum. Niðurstaða rannsóknarinnar á ritgerð Ólafs Davíðssonar er þessi: „Handrit sem Ólafur notar í inngangi útgáfu sinnar eru cnn til, og hann fer ekki eftir neinum ó- skráðum munnmælasögnum sem teljandi eru. Inngangurinn hefur því ekki heimild- argildi." Af þeim 108 blaðsíðum sem þetta yfirlit nemur tekur prentun heimilda — leiklýs- inga frá síðustu árum 16du aldar og fram á síðara helming þeirrar 19du — eitthvað nálægt 65 blaðsíðum. Með því að safna þessu öllu saman á einn stað og greina vandlega sundur heimildir og ályktanir fyrri manna hefur J. S. unnið hið þarfasta verk og gjört ómetanlegan greiða þeim fræðimönnum sem eiga eftir að fást við rannsóknir á kvæðadansleikjum. Að yfiriitinu loknu tekur við tilraun út- gefanda sjálfs til að vinna úr heimildunum og hefst á kapítula sem heitir Samsvörun clztu lýsinga i lútcrskum sið; er þessi þátt- ur heldur lengri en sá fyrri, alls 123 hlað- síður. Hann einkennir varúð og varfærni í dómum og niðurstöðum. Hér verður sá þáttur ekki rakinn en getið skal að lokum kapítulaheitinna svo að lesendur fái hug- mynd um margvíslegar greinir efnisins: Dansinn, Vikivaki, Kvœði í dansi og viki- vaka, Hringbrot, Dýraleikir, Kerlingaleilcir, Vígsluleikir, Hojjinnsleikur, og að auki Smœlki um leiki og kvœði, og loks / gleð- inni. I innganginum er inikill fjöldi kveðskap- ardæma, bæði í heimildum þeim sem þar eru prentaðar og utan þeirra, jafnvel heil kvæði eða drjúgir kaflar. Þar eru t. d. tek- in upp líu erindi úr afmorskvæði sem varð- veitt er í handriti frá því um 1600 og er að því leyti sérstætt að þar er það kona sem 94
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.