Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 118

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Page 118
ílrklippur Vanmetið uppeldisstarf Kommúnistar blása nú enn í láðra sína til aS mótmœla aðild íslendinga að varnarsamtökum lýðrœðisríkjanna ... Illutleysisstefnan er löngu dauð.eins og alkunna er. Mikill hluti íslendinga hef- ur gert sér grein fyrir þessu; þeir vita að dvöl varnarliðsins í landinu er lífs- nauðsyn ... Hitt er aftur á móti um- hugsunarefni, hvernig á því skuli standa, að nokkrir rithöfundar og lista- menn, sumir ágœtir á sínu sviði, virðast ávallt reiðubúnir að stuðla að sam- blœstrí kommúnista og láta þá nota nöfn sín í þessum áróðursherferðum. Auðvitað verða þessir menn að gera dœmið upp við sjálfa sig og eigin sam- vizku. En það er ekki nýtt í veraldar- sögunni að rithöfundar og listamenn gangi í lið með ofbeldisöflum fyrir ein- hvern undarlegan sögulegan misskiln- ing. Þessi mæðulegu orð gat að lesa í rit- stjórnargrein í Morgunblaðinu í maíbyrjun þessa árs. Með þeim virðist Morgunblaðið vera að draga niðurstöðumar af tilraunum sínum til að ala upp íslenzka rithöfunda og listamenn. Þessu uppeldisstarfi hefur verið sýnd sérstaklega mikil rækt síðustu sex ár, með tíðum hugvekjum, — ákúrum og hug- hreystingum til skiptis, mest í formi Morg- unblaðsleiðara. Bókmenntir þessar eru þeg- ar orðnar miklar að vöxtum, og hér er ekki rúm nema fyrir ófullkomið úrval þeirra. I ágúst 1959 gerir Morgunblaðið sér sannarlega góðar vonir um listamenn; það er engu líkara en það hafi þá búizt við að „lausn vandamálsins" væri skammt undan. Þá er skrifuð ritstjórnargrein um yfirvof- andi ósigur kommúnista og endalok áhrifa þeirra á listamenn, og til að ljá orðum sín- um enn meiri styrk vitnar Morgunblaðið í Félagsbréf Almenna bókafélagsins: „Fylg- istap kommúnista er augljósast meðal ungra menntamanna, rithöfunda og lista- manna ... Ekki er unnt að sjá fyrir, hversu víðtækar afleiðingar þetta getur haft fyrir kommúnistaflokkinn ...“ f júní 1960 hefur þó komið í ljós að þessi bjartsýni hefur ekki verið alveg tímabær. Þá stendur í Morgunblaðsleiðara: Enn einu sinni hafa nolckrir íslenzkir listamenn lánað kommúnistum najn sitt, svo þeim mœtti verða meira ágengt en ella í því að vega að rótum varnar- kerfis Vesturveldanna og veikja öryggi Islands, svo rússneskir kommúnistar mœttu einn góðan veðurdag gleypa það varnarlaust. Þessir menn einblína á þá staðreynd, að bandarískt varnarlið hef- ur bœkistöðvar í Kejlavík, en það er eins og þeir vilji ekki hugsa um ástœð- urnar fyrir því ... Varnarliðið er statt hér á landi m. a. til þess að koma í veg fyrír að kommúnistum takist að svipta rithöfunda á Vesturlöndum frelsinu til að hugsa eins og menn, en ekki eins og valdhajarnir í Rússlandi mœla fyrir um 108
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.