Tímarit Máls og menningar - 01.06.1965, Síða 122
Mál og menning
Fyrsta félagsbók Máls og menningar á þessu ári, Bréf úr myllunni minni eftir Alphonse
Daudet í þýðingu Helga Jónssonar, er komin út fyrir nokkru og hefur yfirleitt verið vel
tekið. Auk hennar fá félagsmenn tvær hækur fyrir árgjald sitt þetta árið. Fyrst er að telja
nýtt bindi Mannkynssögunnar. Er það samið af Sverri Kristjánssyni og tekur hann við
þar sem fornaldarsögu Ásgeirs Hjartarsonar lauk. Fjallar bindið um tímabilið frá því um
300 til 911 eða þar um bil. Ekki er að efa að félagsmönnum muni þykja útkoma þessa
bindis sæta miklum og góðum tíðindum. Þriðja bók ársins er nýtt hefti í myndlistarflokki
Máls og menningar, og verða nú gefin út sýnishorn af list Rembrandts. Þessar bækur geta
því miður ekki komið fyrr en nokkuð seint á árinu, eða varla fyrr en í nóvember.
Fyrr á árinu komu út tvær nýjar Iíeimskringlubækur, Ur landsuÖri eftir Jón Helgason
og Leynt og Ijóst eftir Ólaf Jóh. Sigurðsson. Um líkt leyti og þetta tímaritshefti kemur út
bókin Gosið í Surtsey, myndabók með all-löngum inngangi eftir Þorleif Einarsson jarð-
fræðing. Er fyrirkomulag útgáfunnar svipað og á bókinni um Þingvelli sem Mál og menn-
ing og Heimskringla gáfu út fyrir nokkrum árum; prentaðar þrjár erlendar útgáfur, ensk,
þýzk og dönsk, auk þeirrar íslenzku. Mcðal bóka sem koma út í haust og fyrir jól má
nefna rit um Marcellus Skálholtsbiskup eftir Björn Þorsteinsson; Vinaspegil, safn ritgerða
og nokkurra kvæða eftir Jóhannes úr Kötlum; Á mörkum mannlegrar þekkingar, heim-
spekirit eftir Brynjólf Bjarnason; / heiðinni, smásögur eftir Björn Bjarman; Eftir þjóð-
veldið, rannsókn á íslenzkum annálum á síðustu áratugum 13. aldar eftir Hermann Páls-
son. Ennfremur er væntanlegt framhald af eddukvæðaútgáfu Jóns Helgasonar í sama
formi og Tvcer kviður fornar, og standa vonir til að sú bók komi út fyrir jól.
Nýir félagsmenn eru sérstaklega minntir á að þeir eiga kost á að fá allar útgáfubækur
Heimskringlu með 25% afslætti, annaðhvort í Bókabúð Máls og menningar í Reykjavík
eða hjá umboðsmönnum úti á landi.
Leiðrétting
í þýðingu Friðriks Þórðarsonar á Meleyjarþætti í síðasta hefti misprentaðist á bls. 353,
21. línu: ,örþrifaráða‘ fyrir örþrijráða.
112