Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 50

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Side 50
Tímarit Máls og menningar En þótt draumur og skáldskapur séu ólíkir á lokastigi, þá álítur Freud að upphafið sé eitt og hið sama: þeir eru af sömu rót, hafa sama viðfang og sama tilgang. Eða eins og hann segir: „Ný og voldug upplifun vekur með skáldinu minningar um fyrri reynslu sem í flestum tilvikum er frá barn- æsku, þar af sprettur óskin sem rætist í skáldverkinu; í sjálfu skáldverkinu má greina þætti bæði frá nýja tilefninu og gömlu minningunni.“ (Freud, 1907) Nýja volduga upplifunin bak við Draumleik eru átökin við Harriet Bosse, en bernskuminninguna finnum við í spurn barnsins andspænis lífsgátunni: hvað er á bak við dyrnar sem barnið má ekki opna, hvað gerir fullorðna fólkið handan við dyrnar sem barninu er meinað að ganga um. Liðsforinginn man þegar það rann upp fyrir honum hvernig börnin verða til, um leið og þjónustustúlkan hverfur á bak við læstar dyr. Strindberg er í kaupbæti svo vinsamlegur að kveða enn fastar að orði fyrir þá sem skilja ekki hvað hann er að fara. Hann lætur liðsforingjann rifja upp minningu um „býfluguna og blómið“ í næstu replikku. Þótt barnið skilji nú hvernig börnin verða til þá jafngildir það ekki því að barnið sé neinu nær um svarið við lífsgátunni, og þegar það ætlar á eigin spýtur að bera sig eftir björginni, verður það fyrir hræðilegu áfalli: býflugan stingur þegar það snertir blómið. Þessi hræðsla býr um sig í barninu sem ótti við að missa „broddinn" og kemur fram í auðmýkingu liðsforingjans barnalega þegar magisterinn kennir honum lexíu. Við vinnum víst aldrei bug á þeim kvíða. Eg tel mikilvægt að gera sér grein fyrir einu atriði varðandi Draumleik. Draumurinn afhjúpar ekki samhengi sitt í réttri röð sem lesa megi frá orði til orðs og skeyta síðan saman í sögu. Hin einstöku atriði renna saman án þess að okkur sé ljóst á hvern hátt, persónur skipta um hlutverk, sumar líka um nafn. Draumurinn er óháður tíma og rúmi og persónum, hann hrærir öllu saman eftir þörfum. A einum stað segir dóttir Indra: „Eitt ár er guðunum sem andartak.“ Hið sama gildir um drauminn sem á undarlegan hátt er óháður tíma. Allt gerist í hvelli. I því felst auðlegð draumsins öfugt við fátæklegan lestur okkar, við erum nauðbeygð til að lesa textann, sjá leikinn, segja söguna frá byrjun til enda. Lestur okkar byrjar á byrjuninni og lýkur við sögulok. Draumleikur hefst í þeirri trú að eitthvað hljóti að vera gott og í ósk um að sjá og reyna hið góða. Með áherslu á trú, sjón og vissu. En allt versnar jafnt og þétt eins og kemur fram í textanum sjálfum: „Mikið eiga mennirnir bágt.“ Hér erum við komin inn á „hættusvæðið" þar sem við höfum ekkert að vinna, öllu að tapa, eða eins og segir í verkinu um ekkertið, tómleikinn er líka til, hann á sér tilveru. Maðurinn hættir sér inn á bannsvæðið, í Draumleik 312
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.