Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Page 135

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1985, Page 135
Umsagnir um bakur hefur Vésteinn Lúðvíksson óneitanlega gert. Fiskurinn hefur svo lengi sem elstu heimildir sýna, verið tákn leyndar- dómsfullrar nálægðar guðdómsins og sá sem getur séð fyrir sér dimma fiska skjótast hljóðlaust rétt undir yfirborð- inu, hann skynjar merkingarsvið þessa tákns. Svipað er að segja um hafið, sem hefur ekki aðeins heillað og laðað manninn, heldur ævinlega verið ímynd hins óræða, hafdrekinn var skrímsli sem fornþjóðirnar þekktu býsna vel af af- spurn, hann táknaði leyndardóma haf- djúpanna, á bak við þá ímynd leyndist spumingin: hvað býr í djúpinu, hvað býr í þessari ljósfirrtu andhverfu himinsins, hafinu? Og á öllum öldum hafa rithöf- undar glímt við sjóinn, hver man ekki eftir Akab skipstjóra og glímu hans við hvíta hvalinn, Moby Dick, og sögu Nóbelskáldsins Hemingway um gamla manninn og hafið. Og ekki má gleyma goðsögunum, t. d. sögunni um Jónas spámann, sem hélt til hafs í kviði stórfisksins, (kannski var sá stórfiskur Hrefna, hver veit) og var þar í þrjá daga og þrjár nætur. Jónas var fyrirmynd annars spámanns miklu síðar, sem var þrjá daga í kviði jarðar og reis upp á þriðja degi. Jóhannes er að vísu ekki spámaður og því síður endur- lausnari heldur endurskoðandi, en hvað vitum við um skrifstofuna hans, hvaða pappírar eru það, sem hann er að endur- skoða? Kannski eigið líf og lífsviðhorf. Pess eru mörg dæmi úr djúpsálarfræð- inni, að þunglyndissjúklingar lýsi ástandi sínu í anda goðsagnarinnar um Jónas, án þess jafnvel að hafa nokkru sinni þekkt þá tilteknu sögu. Þeir lýsa ferð til hafs í kviði ófreskju, myrkur á alla kanta. En loks birtir, framundan er land og lausn úr kviði fisksins er í nánd. 4 Sé nokkur maður á leið til hafs, helst alla leið útí hafsauga, þá er það Jóhannes endurskoðandi. En sagan fjallar samt ekki um glötun Jóhannesar heldur lausn. I lok sögunnar undrast hann í fyrsta skipti, hvers vegna enginn vill kannast við sjóinn. Jóhannes er reiðubúinn til þess að kannast við sjóinn, horfast í augu við hið óumflýjanlega. Sem fyrr segir er hafið eftir allt saman tvírætt tákn þótt það skírskoti einkum til eyðingar og dauða. Hins vegar hefur vatnið gjörólíka merkingu, það er ímynd lífsins, sem manninn þyrstir i. I bók Vésteins er vatnið eitt af megintákn- unum, lítum t. d. á þessa setningu, sem er bæði í upphafs- og lokakaflanum. Utaf Guði gengur vatn, útaf mönnum gengur vatn, svo er einsog enginn vilji kannast við sjóinn." Þessi orð mætti leggja út á þann veg, að lífið gangi út af Guði og mönnum en enginn vilji horfast í augu við dauðann, hinn óumflýjanlega förunaut lífsins. En þar með er ekki öll sagan sögð um vatnið í bókinni, það verður enn fremur tákngervingur hinna mjúku gilda, t. d. í þessum orðum: Vatn gefur eftir, sagði hún. — En vatn verður ekki brot- ið, mótmælti hann.“ Með öðrum orð- um: Jóhannes hefur uppgötvað, að í þessum harða og miskunnarlausa heimi er mýktin lífvænlegri en harkan. Og svo synda fiskarnir í tárinu, sem er eitt þessara mjúku gilda, angi af höfuð- skepnunni miklu. Þeir fiskar sem synda í tárinu, hvaða fiskar eru það? Kannski fiskar hinnar guðlegu návistar, kannski þeir séu í hinum mjúku gildum, eins og vatninu og tárinu. Kannski er það boðskapur höfundar, ef einhver er, að tárið og á bak við það 397
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.