Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 17

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 17
Listin að Ijtika sögu ómálga börn í samanburði við þessa klukku": „Sekúndurnar í annarra manna klukkum voru einsog óðfara pöddur í kapphlaupi við sjálfar sig, en sekúndurnar í sigurverki hjá afa mínum og ömmu, þær voru einsog kýr, og fóru ævinlega eins hægt og unt er að gánga án þess að standa þó kyr.“ (9) En einkum og sér í lagi hefur drengurinn fengið „þá flugu að í þessari klukku byggi merkilegt kvikindi, og það væri eilífðin". Þar sem hún tifar hægt hljóðar það einsog tveggja atkvæða orð: „ei-líbbð, ei-líbbð“: Það var skrýtið að ég skyldi uppgötva eilífðina sisona, laungu áður en ég vissi hvað eilífð var, og jafnvel áður en ég hafði lært þá setníngu að allir menn séu dauðlegir, já meðan ég lifði í rauninni í eilífðinni sjálfur. Það var einsog fiskur færi altíeinu að uppgötva vatnið sem hann syndir í. (10) Eilífðin er nálæg í bernskuminningum Alfgríms, en einnig tregafull reynsla af því hvernig henni lýkur. I kaflanum „Morgunn eilífðar; endir" lýsir hann samverunni með afa sínum á litla fiskibátnum hans: „Þessir mornar þegar við vorum að vitja um hrokkelsin á Skerjafirði, og þeir voru í raun og veru allir einn og sami morguninn: altíeinu eru þeir liðnir. Stjörnur þeirra eru fölnaðar; kínversku bókinni þinni lokað.“ (133) Persóna afa hans og heimur táknar einhvern veginn óumbreytileikann og öryggið í honum. Jafnvel verðlag gamla mannsins á fiskinum sem hann selur er alltaf óbreytt °g fylgist ekki með í sveiflum markaðarins. Hann neitar að taka á móti eintaki af Biblíunni nema fyrir kýrverð, einsog sú bók var metin á dögum Guðbrandsbiblíu! I kaflanum „Sögulok" er komið að kveðjustund. Alfgrímur er að fara út í heim að læra. Nú er einu sinni enn minnst á klukkuna. Lengi hafði hann ekki tekið eftir tifinu í henni. En á þessum tímamótum í lífi sínu hlustar hann á nýjan leik á boðskap hennar, „ei-líbbð, ei-líbbð“: „Mikið var gott að heyra aftur tóninn í þessari klukku þar sem bjó merkilegt kvikindi; og hafa feingið að gista hér í Brekkukoti, í þessu litla moldarhúsi sem var rök annarra húsa á jörðinni; í því húsi sem léði öðrum húsum tilgáng.“ (312) Og nú gengur Álfgrímur í síðasta skipti með Birni afa sínum og ömmu nútum krosshliðið í Brekkukoti þar sem skilur tvo heima“ (313). I síðasta skipti — því að afi hefur selt Brekkukotspartinn, til þess að Alfgrímur þurfi ekki að þiggja stopulan námsstyrk þeirra í Gúðmúnsensbúð, og vera háður kröfum þeirra og auglýsingarhugmyndum. En hvað merkir þetta hús sem er „rök annarra húsa á jörðinni", þetta krosshlið „þar sem skilur tvo heima“? I sambandi við morgnana á bátnum með afa var minnst á kínversku bókina. Sú bók er heimild taóismans, Bókin um Veginn, „merkilegasta bók sem nokkru sinni hefur verið rituð í heimin- um“ — en svo er henni lýst í kaflanum „Bækur“ í Alþýðubókinni. Það er 143
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.