Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 21

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 21
Listin að Ijúka sögu að gjöf og svo listrænan kistil, einsog skáldin landar hans jöfrum fræg kvæði forðum, en ólíkt þeim fengið litla þóknun fyrir. Framtíðardraumur hans, hvernig sem honum kann að hafa verið háttað, hefur að minnsta kosti ekki ræst í þetta skipti. Næsti áfangi í æfi Steinars verður sá að hann fer frá Kaupmannahöfn einn sér til fyrirheitna lands mormóna, í nýjum draumi. Eftir að hann hefur unnið þar lengi fyrir sér með því að búa til tigulsteina, af vandvirkni einsog alltaf, finnst honum tími til kominn að taka fjölskyldu sína til sín í ríki mormóna. En kona hans deyr um borð í skipinu, og henni er sökkt í hafið. Og þegar hann heilsar börnum sínum í húsi Þjóðreks biskups eftir öll þessi ár, er einsog hyldýpi sé komið milli þeirra: Hann kysti dóttur sína eftir þeim sið sem hafður er undir Hlíðunum, og þó ívið hikandi. Síðan kysti hann son sinn sem spratt frammúr einum skugga stofunnar, en hvorugu systkinanna varð orð á munni er þau mættu honum hér í eilífðinni, fyren hann spyr dóttur sína, hvar móðir þeirra sé, þá segir stúlkan: Hún mamma er dáin — líka. (269) Hvað þýðir þetta líka í munni dóttur Steinars? Það er torráðið, en sennilega á hún við að í augum hennar er pabbi hennar einnig dáinn; hann hefur verið þeim horfinn um óratíma. Eða þá að þau séu öll dáin? „Þau hlustuðu undrandi á sig sjálf tala aftur saman: þrír menn sem allir voru upphaflega sama hjartað, þannig voru þá endurfundir í himnaríki. Þau flýttu sér að þagna.“ (271) Þessir endurfundir þeirra minna á endurfund bóndans við sálarhest sinn hjá konungi. I bæði skiptin eru þeir með blæ ólæknandi angurværðar og einsemdar. Stone P. Stanford — en svo heitir hann í nýju umhverfi sínu — er sendur til náms í „erkiskóla" mormóna á Skotlandi. Eftir það fer hann til Islands til að boða löndum sínum sannleikann. En nú er sá tími liðinn er Islendingar voru vanir að hrekja og lúberja mormóna. I staðinn mætir trúboðinn Steinar algeru áhugaleysi um fagnaðarboðskap sinn, eða þá góðlátlegri gamansemi um hvað hann hafi nú eignast margar kerlingar. Og svo stendur bóndinn að lokum aftur í túninu heima, einn. I grein sinni „Tildrög Paradísarheimtar", sem var upphaflega samin á ensku handa forlagi í Nýju Jórvík 1962, en birtist seinna á íslensku í safninu Upphaf mannúðarstefnu (1965), gerir höfundur forvitnilegar athugasemdir við skáldsögu sína. Hann minnir á hina eilífu þrá mannsins að finna fyrir- heitna landið, og á þær gífurlegu fórnir sem hann er reiðubúinn að færa trú sinni. I klausu sem má lesa sem ágrip af æfi og örlögum Steinars bónda segir svo: 147
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.