Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 54

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Page 54
Tímarit Máls og menningar Og sexhundruð krónum svo leikandi list mun landsjóður tæplega neita. Eg bauð honum allt, sem mín móðir gat misst, en meistarinn kaus ekki að breyta. og síðar: Eins fannst mér á Breiðfjörð hann bresta nú þor, og biluð í strengjunum hljóðin, þó sagði eg, komdu, hver vísan er vor, nú viljum við borga þér óðinn. Hann léttir oss heiman og heima vor spor, eg heyri hvert barn kunna ljóðin, og ef að við fellum þig aftur úr hor í annað sinn grætur þig þjóðin. Löngum hefur mér fundist Gunnarshólmi vera með fegurstu kvæðum sem eg þekki. Eg lærði það snemma, þó eitthvað seinna en Island, farsælda frón, en þau tvö kvæði fundust mér einhvern veginn alltaf standa saman og vera ofurlítið út af fyrir sig. Þau höfðu bæði að mér fannst, sérkennilegt, næstum dulúðugt form og bæði höfðu þau sjálfa þjóðarsöguna í baksýn. Oft hefur mér miklast að hægt skuli vera að yrkja jafn fullkomið kvæði og Gunnarshólmi er, og hversu auðug, gjöful og sveigjanleg íslensk tunga er, þeim sem hafa hana fullkomlega á sínu valdi. Þessar háttbundnu og hljóm- miklu ljóðlínur, fast skorðaðar stuðlum og rími, en líða þó fram létt og eðlilega eins og lindin í fjallshlíðinni. Þannig seiðir skáldið fram sögusviðið, „sælan sveitarblóma" Suðurlands og „hina miklu mynd“ fjallanna, sem umkringja það. Og sagan sjálf, örlagastund hetjunnar, sem lagði líf sitt að veði heldur en að láta neyða sig til að yfirgefa þetta fagra svið, sveit sína og fósturjörð. En staðurinn þar sem hann tók ákvörðun sína stóð enn skrýddur „algrænu skrauti“, þó að landið í kring væri löngu komið í auðn. Þar sem að áður akrar huldu völl, ólgandi Þverá veltur yfir sanda; sólroðin líta enn hin öldnu fjöll árstrauminn harða fögrum dali granda. Flúinn er dvergur, dáin hamratröll, dauft er í sveitum, hnipin þjóð í vanda; en lágum hlífir hulinn verndarkraftur hólmanum, þar sem Gunnar snéri aftur. 180
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.