Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Síða 62

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Síða 62
Tímarit Máls og menningar (sama rit og 1, bls. 685), og verður mark raunsæisins varla sett hærra. Það er því ekki úr vegi að gaumgæfa raunsæisformið út frá einni hinna stóru skáld- sagna hans, Brostnum vonum (Illusions perdues, orðrétt ,Glataðar tálsýnir', kom út í þrem hlutum 1837—1844). Aðalsmenn og mannorðsþjófar Aðalpersóna Brostinna vona er Lucien Chardon, apótekarasonur sem um- fram allt þráir „ást og frægð“; sagan lýsir ólánsömum en stórkostlegum elt- ingaleik hans við snillingsdrauma og skáldagrillur. Hún er látin gerast á árunum í kringum 1820, þegar Loðvík 18. er við völd og ráðaöfl Frakklands vilja helst gleyma byltingunni 1789 og snúa aftur til fornra stjórnarhátta. Svið fyrsta hlutans er Angouléme, heimabær Luciens, og segir af honum og félaga hans David Séchard, draumsýnum þeirra og vonum. Báðir eru þeir úr smáborgarastétt en ósáttir við hlutskipti sitt í tilverunni. Bærinn skiptist félagslega og landfræðilega í tvennt, og býr aðallinn í efri hluta hans. Þessi sveitaaðall (meira sveit en aðall) reynir að halda úti sýningu sem byggð er á handriti Parísaraðalsins, en með of fáum leikurum, fátæklegum sviðsbúnaði og öllu smærri viðburðum. Engu að síður eygir Lucien von um aðgang að París með því að viðra sig upp við Angoulémeaðalinn. Hann verður eins konar hirðskáld og kjölturakki aðalsfrúarinnar Louise de Bargeton, drottn- ingar Angouléme. Svo fer að lokum að þau halda til Parísar, þar sem annar hluti bókarinnar gerist. Lucien byrjar þá að leika aðalsmann, og tekur sér á vafasömum forsendum nafnið de Rupembré. I stórborginni París leikur hver sitt hlut- verk, en Lucien og Louise eiga ekki réttu búningana. Atakanleg lýsing er á því þegar þau hittast í óperunni og sjá allt í einu hvort annað í nýju umhverfi: Hann er einsog jólatré, hún einsog beinagrind. En hún er þó raunveruleg aðalskona, og fær því annað tækifæri, hann er búinn að vera: „I þessum heimi, þar sem litlir hlutir verða stórir, getur ein hreyfing, eitt orð, eyðilagt allt fyrir byrjandanum.“ (bls. 189) Og skyndilega er Lucien ekki lengur til í þessari París, sem samanstendur af 20 samkvæmum hefðarfólks. Lucien kemst í samband við hóp ungra og fátækra andans manna í kring- um Daniel d’Arthez, og hyggst leggja rækt við skáldgáfuna og fága sínar sonnettur, en það ljóðform er honum hugleiknast. Þessi alvörugefni og vinnusami félagsskapur reynist honum þó ekki nógu auðfarin leið til frægðar og frama, og hann leitar fyrir sér annars staðar. Fyrr en varir er hann kominn í bland við bóksala og blaðamenn í kringum markaðsbygging- arnar Galeries-de-Bois: Hér var ekkert nema bóksalar, skáldskapur, pólitík og prósi, tískukaupmenn 188
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.