Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1997, Side 125

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1997, Side 125
RITDÓMAR á ofbeldisfullan hátt heldur með þeirri hægð sem einkennir söguna alla. Heimur sögunnar hringar sig umhverfis þrár hins sakbitna og rótlausa nútímamanns, sektin rennur saman við martraðar- kenndar sýnir sem leita á hann í svefhi og vöku, hindurvitnin varpa ljósi á mann- inn líkt og djöflarnir sem hömuðust á helgum mönnum á tímum frumkristn- innar. í Odda verður honum svefns vant: Ég mun öldungis ekki fá sofið í nótt. Ég heyrði áðan bylmingshögg á þakinu eins og einhver væri þar og riði húsum. Ég hætti mér ekki út að glugga en ímyndaði mér að verur næturinnar hefðu vaknað af dvala. Höggið á þak- inu var raunverulegt. Ég ímyndaði mér að þar væri að verki íslenskur draugur eins og þeim er lýst: afkáralegur stráklingur með stór oddhvöss eyru og bogið nef, tannlausan munn skældan í glotti, himinblá og slikjukennd augu og stóra og kræklótta fingur iðandi af illum áformum. Ég sá fyrir mér verur næturinnar neðan við hann á túninu: iðandi kös af skrípum og ófétum, ókennileg dýr sem rykktust til og hlykkjuðust um i fánýtum dansi, bústna og sællega púka kjamsandi á mykjuflugunum sem flugu kátar upp í þá, raunamæddar afturgöngur húk- andi á hlöðuvegg í aldarlangri ein- semd; ég sá fýrir mér naut sem dró hálfa húðina á eftir sér og stóð grár strókur úr nösum þess, ég sá slýgræna hafmenn, gráa hesta, mannfugla sem kjöguðu um höggvandi loftið, gamla og eineygða kerlingu sem sat og rýndi í spil og sagði í sífellu að hún sæi þar veg, illmenni, svikráð, dánarbeð, bréf frá einhverjum og óvæntar fréttir; (140-41) Þannig virðist veröldin öll mjög við ald- ur í þessari bók þótt sögutími hennar sé tími umróta og framfara, nýrra hug- mynda sem endurspeglast í sjálfstæðis- baráttu þjóðarinnar. Söguhetjan flýr hið iðnvædda samfélag Englands og leitar hins frumstæða, hreina og saklausa. Þótt Jón Hólm sé sá sem miðlar dagbókarrit- ara anda landsins er hann á vissan hátt glæsilegur fulltrúi þess sem ferðalangur- inn flýr. Jón stefnir hraðbyri inn í nútím- ann á meðan dagbókarritari fetar dimma slóð sem liggur aftur í tímann. Jón er maður Sögunnar, framfara, frelsis og áforma; hann glóir af nýrri öld; sá dauði er einn til í hans augum sem vinnur gegn framförum og kröfum tímans. Dagbók- arritari vill hins vegar snúa tímahjólinu í öfuga átt, segja skilið við viðhorf sem leggja lífsþægindi og hamingju að jöfnu. Hann afneitar þeirri hugmynd að þekk- ingin stefni sjálfkrafa fram á við, lífið er fyrir honum ein stór keðja þar sem eitt tengist öðru, þar sem hjartsláttur jarðar- innar gefur manninum merkingu. í ein- feldni sinni vill hann að Islendingar séu trúir sinni norrænu arfleifð, hafni grá- leitri iðnvæðingu og þeirri upplausn sem henni fylgir og leiddi einungis til þess að ,,[þ]eir sæu ekki hafið lengur og ekki himininn yfir sér heldur. Jörðin og jarð- argróðinn hefði ekki neina merkingu fýrir þeim, sjálf hringrás tilverunnar væri rofin og þeim svipt út úr henni“ (66). Persóna Jóns er íslenski draumurinn holdi klæddur: hann ljómar af fyrirheit- um, hann er sveimhugi sem eru allir veg- ir færir en brýtur engu að síður öll sín skip jafnóðum og þau láta úr höfn, hann hefur heila þjóð í höndunum. Ástarsaga hans er listilega skrifuð og annað verður ekki sagt um söguna í heild sinni; biksvört hraunbjörg liggja eins og deyj- andi risar í briminu, torfbær í Reykjavík hjúpaður grænni mygluskán er eins og staður dreginn upp af hafsbotni. Aðal- persónurnar varpa skæru ljósi hver á aðra; Cameron kemur úr gönguferð um Reykjavík fullur af gleði vísindamanns- ins yfir nýjum uppgötvunum á meðan dagbókarritari dregst raunamæddur um götur (sjá 84). Einn helsti kostur sögunnar er sá að ekkert misræmi skapast á milli tungu- máls og söguefnis eða þeirrar vitundar sem textinn kemur á framfæri. Slíkt er alls ekki sjálfgefið þegar fjallað er um TMM 1997:1 115
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.