Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Side 6

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Side 6
Gerður Kristný Grasaferð að læknisráði Viðtal við Svövu Jakobsdóttur Skyggnst á bak við ský heitir ritgerðasafn eftir Svövu Jakobsdóttur sem kemur út hjá Forlaginu innan skamms. í safninu er að finna greinar um ljóð Jónasar Hallgrímssonar, Ferðalok og Alsnjóa, auk sögunnar Grasaferð. Fjórða greinin heitir „Gunnlöð og hinn dýri mjöður“ en það er fræðileg ritgerð um þau erindi Hávamála sem fjalla um rán Óðins á skáld- skaparmiðinum. Svava telur erindi Hávamála lið í launhelgum og vígslu af meiði fornra indó-evrópskra trúarbragða og finnur hliðstæður hjá Keltum. „Jónas Hallgrímsson er einstakur hvernig sem á er litið. Ekki einasta eru kvæði hans listrænar perlur í sjálfu sér; þau eru einnig merkileg í bók- menntasögulegum skilningi, vísa jafnt fram á við sem aftur í gullaldarskáld- skapinn. Ég dreg þá ályktun af greiningu minni á Ferðalokum að Jónas endurheimti hið forna skáldskaparmál sem, samkvæmt eðli sínu, felur í sér bæði hugmyndafræði og fagurfræði Eddukvæða," segir Svava og heldur áfram: „Viðfangsefni ritgerðanna í bókinni eru því náskyld þó að svo kunni ekki að virðast í fyrstu. Um notkun Jónasar á fornum bragarháttum hefur verið ritað fræðilega en minna hefur verið ritað um hugmyndafræðileg tengsl milli Jónasar og miðalda. Nú er það svo að miðaldir án guðstrúar eða sýnar til guðdómlegrar eða yfirskilvitlegrar veraldar í einhverju formi er nánast óhugsandi. í mörgum kvæðum Jónasar gætir mikilla áhrifa frá Völuspá eins og allir vita. Þetta sjáum við mjög snemma á skáldferli hans, t.d. í kvæðinu Ad amicum þar sem áhrif ffá Völuspá og sköpunarsögu Mósebókar renna sam- an. Ég kynnti mér andrúmsloft goðkvæðanna og Völuspár nokkuð vel, fannst mér, þegar ég skrifaði Gunnlaðar sögu því heimsmynd og launhelgar eru nátengd fyrirbrigði. En þegar fór að síga á vinnuna við Ferðalok sá ég að ógjörningur var að halda áfram nema fara mjög rækilega í Völuspá. Hún varð alls staðar fýrir mér í Ferðalokum. Ég taldi mig sjá að þetta forna efni væri svo samofið rómantík Ferðaloka að öðruvísi væri ekki hægt að ljúka verkinu. Þetta gildir einnig um ritunaraðferðina. Margræðni orða og mynd- máls er undirstaða ritstílsins og það á sér sínar orsakir. í fyrstu prentun 4 www.mm.is TMM 1998:3
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.