Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 23

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 23
LJÓSKUSAGA AF MÓLINNI eitthvað lifandi innan um öll þessi gerviefni. Vélarnar voru hjá henni, peningarnir í pappírsörkum og téð Stærsta Dagblað stórborgarinnar. Það sem eftir lifði nætur vék ég ekki af varðstað mínum en ljóshærða konan lét ekki sjá sig aftur. Hver veit hvað hún þurfti að gera - það var ekki slökkt á hæðinni fyrr en klukkan fimm. Hvers konar líf er þetta? Móðir mín segir: „Reglusamt. Allir verða að vinna fyrir sér.“ - „Já já, mamma, auðvitað, en við hvaða skilyrði. Og með hvaða áhyggjur á herðunum.“ - „Það er reyndar alveg rétt hjá þér.“ Enda þótt um það bil fjörutíu metrar séu á milli gluggans míns og þess sem ljóshærða konan stóð við er ég viss um að hún var döpur. Kannski af því að kærastinn hennar drekkur þegar hún þarf að vinna á nóttunni og hrýtur þegar hún ætlar að sofna. Það er brennivínsfnykur í svefnherberginu. Aldrei ffamar skyldi hún vekja hann, eftir að hún hafði ýtt við honum einu sinni og hann sagt svipljótur „Haltu kjafti!“. Á nóttunni lýsa ljóskastarar bygginguna upp. Hún endurkastar hlýju gulu Ijósi með rauðum blæ sem minnir á moskur í birtunni fyrir þrumuveður. Vorgullsrunnarnir á gaddvarinni stálgirðingunni blómstra fyrr og ríkulegar en vorgullið í almenningsgarðinum við hliðina, þar sem ég hafði uppgötvað að borgartrén eru tölusett, með litlum plastspjöldum sem eru negld á stofnana, líka á þau sem alminnst ber á - um leið og þau fara að sperra sig eru þau skráð á lista og lenda í kerfinu. Það var eins og trén hefðu verið tekin af mér með þessu - eins og ég hefði ffam að því verið þeirrar skoðunar að til væri ósnortin náttúra. Ég hef lengi verið bundinn stærsta hlyninum í garðinum vináttuböndum. Á honum hékk spjaldið svo hátt uppi að ég hafði ekki tekið eftir því í faðmlögunum. Nú gekk ég um og grét - frá einu númeri til annars, á næturþeli. Mér hefur enn ekki tekist að átta mig á tímaáætlun varðmannanna. Þeir rölta tveir saman í makindum eftir gangstéttinni. „Varstu búinn að lesa um þessa sem lá dauð í rúminu í morgun?”- „Með kúluna í hausnum?“ - „Nei, með keflið í munninum." - „Ég las bara þetta með kúluna.“ - „Ég las það líka. Þú verður að lesa þetta með keflið.“ - „Er mynd með?“ - „Hm.“ Þeir virðast rólegir og yfirvegaðir eins og dvalargestir á heilsuhæli á göngu í garðinum. Maður þyrfti að sjá framan í þá. Ég eftirlét kíkinn minn manni sem hefur meiri not fyrir hann en ég. Hann býr úti í sveit. Á meðan kíkirinn var enn í minni eigu fylgdist ég með manni sem kom akandi í vinnuna heilum klukkutíma of snemma til þess að tryggja bílnum sínum stæði. Og svo sat hann þarna og var svo værðarlegur á svipinn að það hefði mátt halda að hann væri með hnetur í rassvösunum. Hendurnar hvíldu á stýrinu og héldu á litskrúðugu tímariti, en innihaldi þess kýs ég að láta ólýst. Hann var vakandi en svaf samt, þangað til hann varð mín var og fór að fletta reiðilega. TMM 1998:3 www.mm.is 21
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.