Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 85

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1998, Page 85
KOMMÚNISTAÁVARPIÐ 150 ÁRA óhemju reiði verksmiðjueigenda sem með ítökum sínum í þinginu tókst að fá lágmarksaldurinn lækkaðan í 8 ár. En þetta með öðru var hin hliðin á pen- ingnum og sjálfur var Tómas ættaður úr afturúrsamfélagi sem var lítt snort- ið af kapítalisma og fylgifiskum hans, góðum sem slæmum. Byltingarmennirnir aftur á móti sem stóðu að Kommúnistaávarpinu voru stokknir beint út úr deiglu tímans og beinir þátttakendur í aldahvörf- um. Kommúnistaávarpið markar tímamót að því leyti að í stað þess að andæfa auðvaldinu á tilfinningalegum nótum: ómannúðleika þrældómsins, örbirgð fjöldans, svívirðilegum aðbúnaði og misrétti, leitast það við að sýna hvernig auðvaldsskipulagið lýtur lögmálum sem á endanum munu ganga af því dauðu. Að auðvaldsskipulagið er þungað af afkomanda sínum: sameignar- skipulaginu. Kommúnistar eru einskonar ljósmæður sem sjá um að fæðing- in gangi fljótt og vel fýrir sig, þótt hún verði að sjálfsögðu ekki sársaukalaus. Og ekki útilokað að nota þurfi tengur og jafnvel taka með keisaraskurði. Sýnt er fram á framvindu sögunnar, hvernig fyrri samfélög hafa vaxið, dafnað og hnignað í takt við sömu lögmál. Aðeins er auðvaldsskipulagið stórkostlegra að það skapar skilyrði til að binda endi á þessa blindu þróun, að manninum öðlist loks að smíða gæfu sína sjálfur, beisla alla framleiðslukraffa samfélags og náttúru og frelsa sjálfan sig undan oki brauðstrits og kúgunar. Það er skrifað í ofvæni mikilla atburða þegar byltingarhrina reið yfir Evrópu og er að vissu leyti borið uppi af baráttuglaðri bjartsýni um að landið fyrirheitna sé í augsýn. En æ, það er eitt eðli byltingarholskefla að þegar þær fjara út draga þær til baka strandgóssið sem þær höfðu skolað á land. Byltingin rann út í sandinn. Margir af virkustu þátttakendum hennar voru ýmist teknir af lífi, sendir í fangelsi eða neyddir í útlegð. Fjöldi verkamanna fluttist yfir hafið til Banda- ríkjanna og voru hreyfingunni glataðir. Aðrir leituðu athvarfs í tómlátu um- burðarlyndi Lundúnaborgar, þar á meðal Karl Marx. Trúr sannfæringu sinni um að endurlausnin byggi í sjálfu auðvaldsskipulaginu, tók hann sér nú fyrir hendur að brjóta þennan framleiðsluhátt til mergjar. Hann stóð þá á þrítugu og það sem eftir var ævinnar helgaði hann þessu starfi. Árið 1850, tveimur árum eftir útkomu Ávarpsins lítur hann upp úr verki sínu og skrifar: „Við verkamenn hef ég þetta að segja: þið eigið framundan 15,20,50 ára tímabil borgarastríða og alheimsátaka, ekki bara til að breyta nú- verandi kringumstæðum, heldur til að breyta ykkur sjálfum og búa ykkur undir pólitísk völd.“ Einni og hálfri öld síðar þekkjum við framhaldið. Að það liðu 70 ár frá ritun Ávarpsins og þangað til bylting náði að skjóta rótum og festa sig í sessi með TMM 1998:3 www.mm.is 83
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.